Fréttir

true

Leitin að tungumálaforða barna og unglinga

Í tilefni Alþjóðadags móðurmálsins 21. febrúar næstkomandi hefur verkefnið „Íslandskort – leitin að tungumálaforðanum 2021“ verið sett af stað. Um er að ræða vitundarvakningu um þann fjársjóð sem felst í tungumálum okkar. Hugmyndin er að kortleggja öll tungumál töluð af börnum í leik- og grunnskólum landsins til þess að vekja jákvæða umræðu um tungumál og…Lesa meira

true

Húsnæði Öldunnar í Brákarey hefur verið lokað

Að kröfu eldvarnareftirlits Borgarbyggðar var húsnæði Öldunnar, vinnu- og hæfingarstaðar í Brákarey í Borgarnesi, lokað síðastliðinn föstudag. Aldan hefur verið til húsa í fyrrum matsal sláturhússins. Gerðar hafa verið alvarlegar athugasemdir við brunavarnir í húsinu m.a. sökum þess að vatn hefur komist í rafmagnstöflu og skortur er á flóttaleiðum ef eldsvoði kemur upp. Samkvæmt tilkynningu…Lesa meira

true

Afléttu sérstökum þungatakmörkunum eftir einn dag

Vegagerðin aflétti í gær sérstökum þungatakmörgunum sem settar voru á föstudag á Þjóðvegi 1, milli Borgarness og Varmahlíðar í Skagafirði aukVestfjarðarvegar (60), milli Dalsmynnis og Reykhólasveitar. Vart varð blæðinga í malbiki og því var brugðist við með þessum hætti.Lesa meira

true

Katrín Sif vill leiða lista Pírata

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands, vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er 45 ára hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, gift Aðalsteini Ingólfssyni og samtals eiga þau átta börn. Katrín Sif starfar nú sem ljósmóðir í mæðravernd og sinnir heimafæðingaþjónustu. Í tilkynningu kemur fram að Katrín Sif velur að bjóða sig fram…Lesa meira

true

Nú er hægt að kaupa dorgveiðileyfi í Úlfsvatni

Á fundi stjórnar Veiðifélags Arnarvatnsheiðar fyrr í vikunni var samþykkt að bjóða upp á leyfi til dorgveiða í Úlfsvatni. Stöngin mun kosta fimm þúsund krónur og eru menn beðnir um að setja sig í samband við Snorra Jóhannesson veiðivörð (s. 892-5052) til að fá upplýsingar um færð og annað sem nauðsynlegt er að vita ef…Lesa meira

true

Vara við slitlagsskemmdum

Vegagerðin varar við slitlagsskemmdum á Þjóðvegi eitt, á milli Borgarness og Varmahlíðar í Skagafirði og á Vestfjarðarvegi 60, frá Dalsmynni að Reykhólasveit. Hefur ásþungi á þessum vegum verið lækkaður niður í sjö tonn frá hádegi í dag, 5. febrúar. Á vef Ríkisútvarpsins er greint frá því að tjörublæðingar eru bæði á vestanverðum Svínadal í Dölum…Lesa meira

true

Ættfræðibækur á bókamarkaði

Bókakaffið í Ármúla 42 í Reykjavík leggur nú sérstaka áherslu á ættfræðibækur. „Við erum með lagersölu á fjölmörgum vinsælum niðjatölum og auk þess mikið úrval notaðra ættfræðibóka og fágætra smárita um ættfræði. Alltaf er eitthvað nýtt á boðstólum í hverri viku og hér gildir hið fornkveðna að fyrstur kemur, fyrstur fær. Ættfræðimarkaðurinn stendur út febrúar.…Lesa meira

true

UMFG fær húsnæði undir rafíþróttadeildina

Ungmennafélag Grundarfjarðar fékk á dögunum afhent húsnæði til afnota fyrir nýstofnaða rafíþróttadeild félagins. Húsnæðið er í eigu Grundarfjarðarbæjar og er stefnt á að taka það í notkun á næstu vikum. Ungmennafélag Grundarfjarðar hóf vinnu við stofnun rafíþróttadeildar snemma á síðasta ári og nú er sú vinna langt komin. Búið er að kaupa tölvubúnað, fá húsnæði…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustunga að nýjum leikskóla í Skógarhverfi á Akranesi

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum leikskóla í Skógarhverfi á Akranesi í dag. Þar er um að ræða sex deilda leikskóla með möguleika á stækkun í átta deildir. Hönnuðir leikskólans eru Batteríið arkitektar, Landslag og Verkís. Tvær deildir og vinnurými kennara og aðstaða verður á annarri hæð og útileikrými á hluta af þakinu. Skábraut af…Lesa meira

true

Þyrla í lágflugi yfir Norðurárdalnum

Ábúendur á Glitstöðum í Norðurárdal hrukku upp um miðja nótt aðfararnótt þriðjudags þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir í lágflugi, lægra en venja er til, svo drundi í húsum. Þarna var TF-EIR á ferð en þyrlan hafði verið kölluð út til að sækja veikan einstakling. Þyrlan fór til móts við sjúkrabíl og lenti nærri Fornahvammi,…Lesa meira