
Í desember síðastliðnum mælti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fyrir frumvarpi á Alþingi um Miðhálendisþjóðgarð. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að þjóðlendur í sameign þjóðarinnar innan miðhálendislínu verði gerðar að þjóðgarði, en á miðhálendi landsins eru ein stærstu óbyggðu víðerni Evrópu auk náttúru- og menningarminja. Kveðið er á um stofnun miðhálendisþjóðgarðs í stjórnarsáttmála…Lesa meira








