Fréttir

true

FH stöðvaði sigurgöngu Skagamanna

Skagamenn mættu í gærkvöldi liði FH í þrettándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Heimamenn höfðu unnið síðustu fimm leiki en FH var í efsta sæti deildarinnar og því sjálfstraust í báðum liðum. FH hafði betur í leiknum og sigraði 3-1 og stöðvaði því lengstu sigurgöngu Skagamanna í þrettán ár. Skagamenn skoruðu fyrsta mark leiksins.…Lesa meira

true

Skóflustunga að nýju Amtsbókasafni

Í gær var tekin fyrsta skóflustunga að nýju Amtsbókasafni og skólabókasafni í Stykkishólmi, við hlið grunnskólans. Skóflustunguna tóku í sameiningu Ragnheiður Valdimarsdóttir, formaður safna- og menningarnefndar, Hafdís Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, formaður skólanefndar Stykkishólmsbæjar. Samið verður við Skipavík um framkvæmdina og við athöfnina undirrituðu Sturla Böðvarsson bæjarstjóri og Sævar Harðarson, forstjóri Skipavíkur, yfirlýsingu…Lesa meira

true

Austin Bracey kveður Hólminn

Körfuknattleiksmaðurinn Austin Magnús Bracey mun ekki leika með Snæfelli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á næsta vetri. Hann hefur nú samið við Tindastól. Austin gekk til liðs við Stykkishólmsliðið árið 2014 og var einn af lykilmönnum liðsins á síðasta keppnistímabili þar sem hann skoraði 16,3 stig að meðaltali í leik.Lesa meira

true

Aflahæstir á strandveiðum

Á vef Landsambands smábátaeigenda má sjá aflahæstu bátana á strandveiðum í maí, júní og júlí. Vestlenskir bátar róa einkum á svæðum A, sem nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkur, og svæði D sem nær frá Höfn til Borgarbyggðar. Þá var nokkrum vestlenskum bátum róið til fiskjar á Húnaflóa á svæði B. Þrír aflahæstu bátarnir…Lesa meira

true

Aldrei meiri umferð um Hvalfjarðargöng

Frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð hefur umferð í gegnum göngin í júnímánuði aldrei verið eins mikil og í júní 2016. Alls fóru 239.464 ökutæki í gegnum göngin í júní. Aukningin er mikil því ef borið er saman við sama mánuð í fyrra er nemur hún 6,08 prósentum á milli ára. Þó aukningin hafi verið mikil…Lesa meira

true

Framlög til afreksíþrótta fjórfaldast

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns voru undirritaðir samningar mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands síðastliðinn fimmtudag. Samningarnir gilda til þriggja ára og kveða á um stóraukið framlag íslenska ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi. Framlagið mun hækka í áföngum úr 100 milljónum á fjárlögum síðasta árs í 400 milljónir á…Lesa meira

true

Kennurum án kennsluréttinda fjölgar

Kennarar án kennsluréttinda voru 5,4% starfsfólks við kennslu í grunnskólum landsins haustið 2015. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar. Lægst var hlutfall kennara án kennsluréttinda í Reykjavík, 2,4% og 3,9% á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur. Hlutfallið er hæst á Vestfjörðum, 16,9% og Suðurnesjum, 14,5%. Á Vesturlandi lækkaði hlutfall kennara án kennsluréttinda frá árinu á undan.…Lesa meira

true

Víkingur styrkir sig fyrir lokasprettinn

Nú er Pepsi deild karla í knattspyrnu rúmlega hálfnuð. Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga í Ólafsvík, gaf það út þegar félagsskiptaglugginn var opnaður að hann ætlaði að ná sér í leikmenn. Víkingur fékk til sín Martin Svensson frá Víkingi frá Reykjavík um það leyti sem glugginn var opnaður en nú hefur liðið bætt við sig tveimur…Lesa meira

true

Lokamánuður strandveiða hafinn

Fjórða og síðasta lota strandveiðitímabilsins hófst 2. ágúst síðastliðinn og mega standa til loka mánaðarins, að því gefnu að kvótinn klárist ekki fyrir þann tíma. Veiðar í júlí gengu vel. Alls veiddu strandveiðibátar 2.385 tonn hringinn í kringum landið í mánuðinum, að því er kemur fram á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda. Meðalafli var sá hæsti frá…Lesa meira

true

Guðmundur Böðvar aftur í ÍA

Um síðustu helgi náðu Skagamenn og Fjölnir samkomulagi um að Guðmundur Böðvar Guðjónsson myndi klára tímabilið á lánssamningi hjá Skagamönnum. Guðmundur Böðvar er 27 ára gamall og hóf að leik með ÍA árið 2006. Hann lék alls 155 leiki fyrir Skagamenn áður en hann færði sig yfir til Fjölnis árið 2013 en hann aðstoðaði félagið að…Lesa meira