Fréttir

true

Súrt tap hjá Skallagrímskonum

Skallagrímur tapaði naumlega gegn Fjölni, 74-76, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardaginn. Liðin komu bæði sterk til leiks og byrjuðu hnífjöfn en Skallagrímskonur náðu svo yfirhöndinni í lok fyrsta leikhluta og leiddu með sjö stigum í lok leikhlutans, 21-14. Fjölniskonur gáfu ekkert eftir í örum leikhluta og voru fljótar að minnka muninn…Lesa meira

true

Skortur er á dagforeldrum á Akranesi

Akraneskaupstaður auglýsti nýverið eftir dagforeldrum til starfa í bæjarfélaginu. Að sögn Valgerðar Janusdóttur, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, hefur skortur á dagforeldrum aðallega gert vart við sig þegar líða fer á veturinn. Dagforeldrar hefja störf á haustin í flestum tilfellum með nýjan hóp barna og fylla þá sín pláss eins og kostur er. Þegar líða fer…Lesa meira

true

Bólusettir geta sótt sér bólusetningarskírteini

Í liðinni viku fékk hópur einstaklinga síðari bólusetningarsprautuna gegn COVID-19 og telst þar með fullbólusettur. Hjá embætti landlæknis var í síðustu viku lögð lokahönd á rafræna lausn sem gerir fólki kleift að sækja sér bólusetningarvottorð á vefnum; heilsuvera.is. Vottorðið er að efni og útliti í samræmi við fyrirliggjandi evrópska staðla og alþjóðlega bólusetningarskírteinið. „Markmiðið er…Lesa meira

true

Kynna vatnsveitustyrki fyrir lögbýli

Mánudaginn 1. febrúar n.k. opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum. Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á vef Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er…Lesa meira

true

Mælti fyrir frumvarpi um villt dýr

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti á Alþingi í síðustu viku fyrir frumvarpi um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Um er að ræða heildarendurskoðun laga, sem kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Umhverfi málaflokksins hefur tekið töluverðum breytingum frá því núverandi löggjöf tók gildi fyrir 25 árum, til…Lesa meira

true

Auka loðnukvótann

Hafrannsóknastofnun hefur endurútreiknað loðnuráðgjöf sína eftir að loðna mældist austan við landið í síðustu viku. Loðnuráðgjöf um afla á vertíðinni 2020/21 verður því 61 þúsund tonn í stað 22 þúsund tonna eins og stofnunin hafði áður mælt með.Lesa meira

true

Munum eftir smáfuglunum

Nú þegar frost herðir og jarðbönn eru víða er í senn gott og nærandi að muna eftir smáfuglunum. Þeirra möguleikar til fæðuöflunar eru takmarkaðir og þiggja þeir með þökkum matargjafir hvort sem er heima við hús eða úti í trjálundum. Meðfylgjandi mynd var tekin nýlega í skógræktinni á Akranesi. Netbúr með matarkúlum hengt upp í…Lesa meira

true

Séra Jónína á leið í Hafnarfjörð

Séra Jónína Ólafsdóttir, einn þriggja presta á Akranesi, var síðastliðinn fimmtudag ráðin sóknarprestur í Hafnarfjarðarprestakalli og er því á förum frá Akranesi. Sr. Jónína var settur prestur í Dalvíkurprestakalli um hálfs árs skeið áður en hún var ráðin prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli 1. apríl á síðasta ári.Lesa meira

true

Fjölgar í einangrun

Lítilsháttar hefur nú fjölgað þeim sem eru í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi nú í hádeginu eru þeir nú þrír í Borgarnesi og tveir í Ólafsvík. Þrettán manns eru að auki í sóttkví í landshlutanum; níu í Borgarnesi og fjórir á Akranesi.Lesa meira

true

Heilbrigðisstarfsmenn eru Skagamenn ársins

Þorrabót Skagamanna var haldið í kvöld. Þorrablótinu var streymt að þessu sinni. Að venju var Skagamaður ársins tilkynntur. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri, kynnti Skagamann ársins eða öllu frekar Skagamenn ársins. Það er heilbrigðisstarfsfólk sem eru Skagamenn ársins. Sævar Freyr sagði meðal annars í ávarpi sínu: “Heilbrigðisstarfsfólk stóð í framlínunni og setti líf sitt í hættu…Lesa meira