Fréttir

true

Bernie í heimsókn á bóndadaginn

Í dag er bóndadagur, svolítið hryssingslegur, en bóndadagur engu að síður. Það var ekki til að skemma daginn að vel búinn Bernie Sanders, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, kom við á ritstjórn Skessuhorns, aðallega til að sækja nýjasta blaðið, en fékk í leiðinni rjómapönnukökur í tilefni dagsins.Lesa meira

true

Fjáröflunarátak hafið fyrir Kraft

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, er með vitundarvakningu og fjáröflunarherferð sem stendur til 4. febrúar næstkomandi. Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á hversu marga krabbamein hefur áhrif á. Seldar verða húfur til styrktar félaginu og starfsemi þess styrkja aflað fyrir félagið. „Um 70 ungir einstaklingar greinast með…Lesa meira

true

Vonskuveðri spáð norðan- og austanlands

Vegagerðin bendir á að nú er spáð versnandi veðri norðan- og austanlands og að ekkert ferðaveður verði á því svæði. Spáin gerir ráð fyrir ákafari hríð og jafnframt að hvessi með skafrenningi og blindu.  Ekki er horfur á að veður skáni að ráði fyrr en kemur fram á sunnudag.Lesa meira

true

Engin smit voru greind innanlands í gær

Enginn var greindur með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. 89 eru nú í einangrun á landinu vegna veirunnar, 222 í sóttkví og 19 liggja á sjúkrahúsi. Alls hafa 5.981 greinst með veiruna hér á landi frá því í febrúar á síðasta ári og 29 hafa látist. Nýgengi innanlandssmita er nú 12,3.…Lesa meira

true

Miklar rakaskemmdir í Ráðhúsi Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði á fundi sínum í gær um rakavandamál í Ráðhúsinu við Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Fram kemur í fundargerð að hafnar séu framkvæmdir við húsið og til staðar séu nú fyllri upplýsingar en áður um umfang viðhalds á því. Byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að finna tímabundið húsnæði fyrir hluta eða alla starfsemi…Lesa meira

true

Lagfæra brúna yfir Geirsá í Borgarfirði

Brúarvinnuhópur frá Vegagerðinni vinnur þessa dagana við lagfæringar á brúnni yfir Geirsá í Borgarfirði, en hún er hluti tengivegar neðst í Reykholtsdal, bæjanna Kletts og Runna. Brúarbitar sem hvíldu á trébúkkum gáfu sig síðasta sumar þegar steypudælubíl var ekið yfir hana. Hefur brúin verið lokuð fyrir umferð síðan. Brúargólfinu er lyft af meðan undirstöðurnar eru…Lesa meira

true

Þverun Þorskafjarðar boðin út

Þverun Þorskafjarðar hefur nú verið boðin út en nýverið náðist samkomulag við landeigendur í Þorskafirði, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Verkið ber heitið Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir-Þórustaðir. Í því felst nýbygging Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla við austanverðan Þorskafjörð. Meðal verkefna er bygging 260 metra langrar steyptrar brúar yfir fjörðinn. Vegurinn verður alfarið…Lesa meira

true

Góð viðbrögð við væntanlegu streymisþorrablóti Skagamanna

Þorrablót Skagamanna verður laugardaginn 23. janúar, á öðrum degi Þorra. Að þessu sinni verður þorrablótið með óhefðbundnu sniði og verður streymt á netinu. Club 71, sem samanstendur af Skagamönnum sem flestir eru fæddir árið 1971, hefur frá upphafi 2011 staðið fyrir þorrablótinu. Nú hefur Sjötíu og níu menningarfélagið, árgangur 1979, tekið við verkefninu og fer…Lesa meira

true

Sigrún fer með landsliðinu til Slóveníu

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fyrirliði meistaraflokks kvenna í körfu hjá Skallagrími hefur verið valin í A-landsliðshóp kvenna. Framundan er landsleikjagluggi sem er síðasta umferð í undankeppni EM kvenna 2021. Leikirnir áttu að vera leiknir heima og að heiman en því hefur verið breytt og liðið mun leika í Ljubljana í Slóveníu í „öryggisbubblu“ sem FIBA mun…Lesa meira

true

Þóttust vera eftirlitsmenn og lokuðu hundagæslu

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á atburði þar sem tveir einstaklingar heimsóttu hundagæslu undir því yfirskyni að vera starfsmenn stofnunarinnar. Sett var út á starfsemina og hún stöðvuð. Ekkert eftirlit fór fram þennan dag af hálfu Matvælastofnunar, segir í tilkynningu. Í 116. gr. almennra hegningarlaga segir að hver sá sem tekur sér opinbert vald…Lesa meira