Fréttir

true

Aflahæstir á strandveiðum

Á vef Landsambands smábátaeigenda má sjá aflahæstu bátana á strandveiðum í maí, júní og júlí. Vestlenskir bátar róa einkum á svæðum A, sem nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkur, og svæði D sem nær frá Höfn til Borgarbyggðar. Þá var nokkrum vestlenskum bátum róið til fiskjar á Húnaflóa á svæði B. Þrír aflahæstu bátarnir…Lesa meira

true

Aldrei meiri umferð um Hvalfjarðargöng

Frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð hefur umferð í gegnum göngin í júnímánuði aldrei verið eins mikil og í júní 2016. Alls fóru 239.464 ökutæki í gegnum göngin í júní. Aukningin er mikil því ef borið er saman við sama mánuð í fyrra er nemur hún 6,08 prósentum á milli ára. Þó aukningin hafi verið mikil…Lesa meira

true

Framlög til afreksíþrótta fjórfaldast

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns voru undirritaðir samningar mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands síðastliðinn fimmtudag. Samningarnir gilda til þriggja ára og kveða á um stóraukið framlag íslenska ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi. Framlagið mun hækka í áföngum úr 100 milljónum á fjárlögum síðasta árs í 400 milljónir á…Lesa meira

true

Kennurum án kennsluréttinda fjölgar

Kennarar án kennsluréttinda voru 5,4% starfsfólks við kennslu í grunnskólum landsins haustið 2015. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar. Lægst var hlutfall kennara án kennsluréttinda í Reykjavík, 2,4% og 3,9% á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur. Hlutfallið er hæst á Vestfjörðum, 16,9% og Suðurnesjum, 14,5%. Á Vesturlandi lækkaði hlutfall kennara án kennsluréttinda frá árinu á undan.…Lesa meira

true

Víkingur styrkir sig fyrir lokasprettinn

Nú er Pepsi deild karla í knattspyrnu rúmlega hálfnuð. Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga í Ólafsvík, gaf það út þegar félagsskiptaglugginn var opnaður að hann ætlaði að ná sér í leikmenn. Víkingur fékk til sín Martin Svensson frá Víkingi frá Reykjavík um það leyti sem glugginn var opnaður en nú hefur liðið bætt við sig tveimur…Lesa meira

true

Lokamánuður strandveiða hafinn

Fjórða og síðasta lota strandveiðitímabilsins hófst 2. ágúst síðastliðinn og mega standa til loka mánaðarins, að því gefnu að kvótinn klárist ekki fyrir þann tíma. Veiðar í júlí gengu vel. Alls veiddu strandveiðibátar 2.385 tonn hringinn í kringum landið í mánuðinum, að því er kemur fram á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda. Meðalafli var sá hæsti frá…Lesa meira

true

Guðmundur Böðvar aftur í ÍA

Um síðustu helgi náðu Skagamenn og Fjölnir samkomulagi um að Guðmundur Böðvar Guðjónsson myndi klára tímabilið á lánssamningi hjá Skagamönnum. Guðmundur Böðvar er 27 ára gamall og hóf að leik með ÍA árið 2006. Hann lék alls 155 leiki fyrir Skagamenn áður en hann færði sig yfir til Fjölnis árið 2013 en hann aðstoðaði félagið að…Lesa meira

true

Frábær gangur á Vatnasvæði Lýsu

„Veiðin gengur bara vel vatnasvæðinu hjá okkur, mikið af sjóbirtingi í Hópinu og neðar á svæðinu,“ sagði Símon Sigurmonsson þegar við spurðum um Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi. En veiðin hefur verið góð á svæðinu, sjóbirtingur, bleikja og lax. „Það er mikið af sjóbirtingi, mjög mikið. Einn og einn lax er líka að gefa sig, veiðimenn…Lesa meira

true

Vilja flýta breikkun Vesturlandsvegar

Hagvísir 2016, skýrsla sem Vífill Karlsson vann fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi um ástand vega í landshlutanum, var lögð fram á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 28. júlí síðastliðinn. Þar kemur meðal annars fram að fjárveiting til Vesturlandsvegar nemur um helmingi af þeim peningum sem varið hefur verið í Reykjanesbraut á tíu ára tímabili, frá 2005…Lesa meira

true

Sprengja fannst í Borgarnesi

Bresk sprengivörpusprengja frá því í seinni heimsstyrjöld fannst skammt frá Kárastaðaflugvelli í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Félagar í Björgunarsveitinni Brák rákust á sprengjuna þar sem þeir voru að undirbúa flugeldasýningu fyrir gesti Unglingalandsmóts UMFÍ. Lögregla kallaði til sérfræðinga úr sprengjusveit Landhelgisgæslunnar sem að mættu á svæðið og gerðu sprengjuna óvirka. Talið er að sprengjan hafi verið neðanjarðar…Lesa meira