Fréttir

true

ÍA og Grótta takast á í kvöld

Fótbolti.net mótið í knattspyrnu hefst í dag. Mótið markar upphaf knattspyrnuárs karla og hefur verið haldið á undirbúningstímabilinu í janúar og febrúar síðan árið 2011. ÍA spilar í riðli með Gróttu og HK og leikur fyrsta leikinn í kvöld þegar ÍA heimsækir Gróttu. Leikurinn hefst kl 18:30.Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í körfunni á morgun

Vesturlandsslagur verður í Borgarnesi á morgun, laugardag, þegar Skallagrímur og Snæfell eigast við í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 16:00. Skallagrímur situr í 5. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjá leiki en Snæfell er í sætinu fyrir neðan með tvö stig eftir þrjá leiki.Lesa meira

true

Eftirlit verður eflt með spilakössum

Undanfarið hefur lögreglan á Vesturlandi lagt áherslu á eftirlit með spilakössum. Strangar reglur gilda um spilakassa og má þar nefna staðsetningu kassanna og merkingar á þeim. Kassarnir eiga að vera merktir með raðnúmerum og aðilanum sem ágóðinn rennur til. Þá þarf að gæta sóttvarna og þess að ólögráða einstaklingum er óheimilt að nota kassana.Lesa meira

true

Spáð fyrir um áhrif aukins atvinnuleysis á tekjur sveitarfélaga

Í nýjum Hagvísi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem kemur út í þessari viku, er fjallað um hvað atvinnuleysi á nýliðnu og yfirstandandi ári geti haft á tekjur sveitarfélaga í landshlutanum. Gerðir eru fyrirvarar um magn og gæði gagna sem unnið var úr, en greiningin gefur engu að síður til kynna að aukning atvinnuleysis muni hafa…Lesa meira

true

Streymt frá úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs á morgun

Á morgun, föstudaginn 15. janúar klukkan 14, fer Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands fram. Líkt og aðrir viðburðir af þessari stærðargráðu verður um rafræna útsendingu að ræða að þessu sinni, en streymt verður frá Breiðinni á Akranesi. Í útsendingunni tilkynna Ólafur Sveinsson forstöðumaður atvinnuráðgjafar og Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi um styrkhafa í flokkum atvinnu- og nýsköpunarstyrkja, menningarstyrkja og…Lesa meira

true

Vilja opna lifandi og skemmtilegan stað

Nýir eigendur að Dússabar í Borgarnesi sátu hvergi auðum höndum eftir að hafa fengið lyklavöldin að staðnum á laugardaginn. „Við tókum við lyklunum í gær og það er gjörsamlega búið að rústa öllu hérna út. Þú sérð hvað spennan er mikil,“ segir Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir, einn af eigendum nýja staðarins í samtali við blaðamann Skessuhorns.…Lesa meira

true

Kortavelta landans í desember sló fyrri met

Heildarkortavelta Íslendinga hefur aldrei verið hærri en í desember síðastliðnum, alls 83,8 milljarðar sem er aukning um 8,7% frá fyrra ári. „Líklegt þykir að miklar takmarkanir á verslunarferðum landans til útlanda hafi hér haft mikil áhrif. Stærstum hluta var varið í verslunum, alls 55,3 milljörðum (eða 66% af heildarveltu) á meðan 28,5 milljörðum var eytt…Lesa meira

true

Ásmundur Einar í Reykjavík og galopnar framboðsmál í NV kjördæmi

Ásmundur Einar Daðason, oddviti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi og sitjandi félags- og barnamálaráðherra, tilkynnti í gær að hann hyggist ekki gefa kost á sér til að leiða lista flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Fyrirfram þótti staða hans sterk í kjördæminu og þingsæti nánast öruggt í ljósi þess að flokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu.…Lesa meira

true

Guðveig stefnir á landsmálin

Guðveig Lind Eyglóardóttir í Borgarnesi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. – 2.  sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 2021. Í tilkynningu sem hún sendi frá sér í gær kemur m.a. fram að frá árinu 2014 hafi hún verið oddviti Framsóknarflokksins í Borgarbyggð. „Í gegnum störf mín sem sveitarstjórnafulltrúi hef…Lesa meira

true

Janúarúthlutun Mæðrastyrksnefndar

Janúarúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 19. janúar á milli klukkan 12 og 16 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a. Umsækjendur eiga að hringja í síma 859-3000 (María) eða 859-3200 (Svanborg) i dag, fimmtudaginn 14. janúar og föstudaginn 15. janúar á milli kl. 11 og 13, en einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com.…Lesa meira