Fréttir

true

Innkalla Monster drykki vegna aukaefna

Matvælastofnun vekur athygli á of miklu magni af aukefninu própýlenglýkól (E1520) í orkudrykkjunum Monster Lewis Hamilton LH 44 og Monster Vanilla Espresso. Innflytjandinn, Coca-Cola European Partners (CCEP), innkallar drykkina í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi vöruheiti: Vörumerki: Monster Vöruheiti: Lewis Hamilton LH44 Energy Drink Best fyrir dagsetning: Allar dagsetningar Strikamerki: 5060337508988…Lesa meira

true

Kallaðir út til aðstoðar göngumönnum

Björgunarsveitir af Vesturlandi hafa verið kallaðar út til aðstoðar skíðagöngumönnum sem staddir eru norðan við Þursaborg í Langjökli. Einn göngumannanna sneri sig á fæti. Mennirnir eru samkvæmt upplýsingum Skessuhorns vel búnir en þeir halda kyrru fyrir þar til hjálp berst. Farið er til móts við mennina á jeppum og snjósleðum.Lesa meira

true

Fjórir með Covid-19 á Vesturlandi

Þrjú kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og voru allir sem greindust í sóttkví. Fjórtán smit greindust á landamærunum, tvö smitanna eru virk og tólf bíða niðurstöðu úr mótefnamælingu. Í gær greindust einnig þrír með virkt smit í seinni landamæraskimun. Hér á Vesturlandi eru nú fjórir með Covid, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Þrír þeirra…Lesa meira

true

Allri dagskrá Stöðvar 2 verður læst

Allt efni Stöðvar 2 verður í læstri dagskrá frá og með 18. janúar næstkomandi, þar á meðal fréttir stöðvarinnar. Stöð 2 verður því að fullu áskriftarstöð, en áskriftinni fylgir einnig aðgangur að efnisveitunni Stöð 2+. Í tilkynningu er haft eftir Þórhalli Gunnarssyni framkvæmdastjóra fjölmiðla Stöðvar 2 að þetta sé sóknaraðgerð. Með þessu sé sess fréttastofu…Lesa meira

true

Bjóða heildarlausn á þorrablótum á netinu

Á þessum fordæmalausu tímum verða þorrablótin fyrir barðinu á samkomutakmörkunum líkt og margt annað. Með það að markmiði að halda þorrablótum 2021 lifandi hafa nokkur fyrirtæki sameinað krafta sína og búið til lausn; „Þorrablót heim í stofu.“ „Það eru fyrirtækin Þrjár á priki, Hilton hótel, Kalla K og Kjarnafæði sem búið hafa til pakka sem…Lesa meira

true

Loðnumælingum a fimm skipum lokið í bili

Lokið er leiðangri fimm skipa með það að markmiði að mæla stærð hrygningarstofns loðnu. Skipin hafa nú haldið til heimahafna. Loðna fannst með landgrunnskantinum norðan Íslands allt austur að Langanesdýpi. Ekkert var að sjá á grunnum né með kantinum austan lands. Að megninu til fékkst hrygningarloðna í togsýnum. Niðurstöður mælinganna munu liggja fyrir síðar í…Lesa meira

true

Góður afli á Vestfjarðamiðum í upphafi árs

Ísfisktogarinn Akurey AK, sem Brim gerir út, er nú á Vestfjarðamiðum eftir að hafa fengið 140-145 tonna afla í fyrstu veiðiferð ársins. Aflanum var landað í Reykjavík á fimmtudaginn. Eiríkur Jónsson skipstjóri segir að nýtt ár hafi byrjað vel og aldrei þessu vant hafi verið ágætt veður allan túrinn. ,,Við vorum mest að veiðum í…Lesa meira

true

Innkaupapokar úr plasti nú bannaðir með lögum

Um áramótin tóku þær reglur gildi sem banna afhendingu plastburðarpoka í verslunum. Bannið tekur jafnt til þunnu, glæru grænmetispokanna og innkaupaburðarpokanna, en nær ekki yfir plastpoka sem eru seldir í rúllum í hillum verslana. „Til þess að koma í veg fyrir að einnota neysla færist yfir á aðra eru einnota burðarpokar úr öðrum efniviði en…Lesa meira

true

Píratar ætla að bjóða fram í öllum kjördæmum

Skráning í prófkjör Pírata er nú hafin og stendur yfir til 3. mars, en þann sama dag hefst jafnframt prófkjörið sjálft á kosningavef Pírata, x.piratar.is. Prófkjörinu lýkur 13. mars og mun þá liggja fyrir hverjir verða í framboði fyrir Pírata í komandi alþingiskosningum. „Hver sem er getur boðið sig fram í prófkjörinu. Til þess þarf…Lesa meira

true

Ætla að endurvekja Skagarúntinn

Alexander Aron Guðjónsson hefur stofnað viðburð á Facebook þar sem hvatt er til þess að Skagamenn endurveki hinn gamla rúnt um Skólabraut og nágrenni í miðbænum miðvikudaginn 13. janúar klukkan 20:40. „Endurvekjum rúntmenningu Skagamanna, fjölmennum á göturnar og rúntum fram í rauða nóttina. Alveg tilvalið í kófinu! Svo er hægt að kíkja við í lúgunni…Lesa meira