Fréttir

true

24 ára vann 60 milljónir í Vikinglottói

Hann var heppinn ungi maðurinn sem vann 59,7 milljónir í Vikinglottó sl. miðvikudag. Fyrst ætlar hann að kaupa sér íbúð og síðan bíl og svo ætlar hann að gera eitthvað skemmtilegt fyrir afganginn, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Maðurinn hafði keypt sér 10 raða Vikinglottomiða á lotto.is kvöldið fyrir útdrátt, mundi eftir honum seint…Lesa meira

true

Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðvikudaginn

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni breytingar á samkomutakmörkunum sem taka gildi frá og með miðvikudeginum 13. janúar og gilda til 17. febrúar næstkomandi. Sóttvarnalæknir lagði til tilslakanir í ljósi þess hversu vel hefur gengið undanfarið við að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar en þó með þeim fyrirvara að þróunin snúist ekki…Lesa meira

true

Tveir greindust með Covid í gær

Tveir voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær skv. uppfærðum tölum á covid.is og voru báðir í sóttkví. Nú eru 134 í einangrun vegna veirunnar hér á landi og 332 í sóttkví. 20 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid-19 en enginn er á gjörgæslu.Lesa meira

true

Skoðað verður að breyta Hafbjargarhúsinu í veitingastað

Breið nýsköpunarsetur á Akranesi hefur fengið 750 þúsund króna styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands til að vinna að undirbúningi og þróunarvinnu fyrir stofnun veitingastaðar í Hafbjargarhúsinu á Breið á Akranesi. Staðsetningin þykir spennandi, en húsið er við hlið bílastæðisins sem gestir Akranesvita leggja á. Húsið stendur við sjóinn á sunnanverðri Breiðinni en framan við það er…Lesa meira

true

UMSB falin verkefni fyrir UMFÍ

Ungmennafélag Íslands hefur samið um tilfærslu verkefna til Ungmennasambands Borgarfjarðar. Í samningnum felst að UMSB tekur að sér ýmis verkefni á sviði forvarna- og lýðheilsumála. Samningurinn er nýstárlegur og er liður UMFÍ í því að styrkja íþróttahéruð landsins. Samningurinn kveður á um að Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri UMSB, sinni vinnunni fyrir UMFÍ meðfram störfum sínum fyrir…Lesa meira

true

Auglýst eftir bátum í netarall

Ríkiskaup fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar óska eftir tilboðum í leigu á netabátum til verkefnisins „Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum – Netarall 2021.“ Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leiðangrar yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1.…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 47 á síðasta ári

Þjóðskrá hefur birt tölur um íbúafjölda 1. janúar síðastliðinn. Þar kemur fram að íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 47 á tímabilinu 1. desember 2019 til 1. janúar 2021. Eru þeir nú 16.713 talsins. Fjölgunin er 0,3% milli ára. Hlutfallslega mest fjölgun íbúa varð í Hvalfjarðarsveit þar sem nú búa 647, fjölgaði um 22 eða 3,5%…Lesa meira

true

Heimila Íslandspósti að fella niður afslætti af magnpóstsendingum

Póst- og fjarskiptastofnun hefur með úrskurði 30. desember síðastliðinn fallist á beiðni Íslandspósts um að gera verulegar breytingar á þeim afsláttarkjörum fyrir magnpóst, sem verið hafa í gildi frá árinu 2012. Með ákvörðun sinni hefur stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til að gera athugasemdir við ósk Íslandspósts um breytingar á gjaldskrá…Lesa meira

true

Vel heppnuð flugeldasýning á þrettándanum

Björgunarfélag Akraness hélt flugeldasýningu klukkan 18 í gær á þrettándanum. Flugeldunum var skotið upp af stóru bryggjunni og var því hægt að fylgjast með sýningunni meðfram allri strandlengju Akraness að sunnanverðu. Var tilkomumikið að horfa á sýninguna af Langasandi í blíðviðrinu.Lesa meira

true

Náði árangri á heimsmælikvarða

Í umsögn forsvarsmanna Íþróttabandalags Akraness við kjör Íþróttmanns Akraness 2020 í gærkvöldi kom fram að Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona stimplaði sig á liðnu ári vel og vandlega inn á styrkleikalista Íslands í klassískum kraftlyftingum. Hún setti 17 ný Íslandsmet og eftir árið standa sjö af þeim ennþá. Árið var erfitt fyrir alla en Kristín náði þó…Lesa meira