
Hafrannsóknastofnun áformar að haldið verði til loðnumælinga 4. janúar, eða eins snemma og veður leyfir. Mælingarnar verða framkvæmdar á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni ásamt loðnuveiðiskipunum Ásgrími Halldórssyni SF, Aðalsteini Jónssyni SU og grænlenska skipinu Polar Amaroq. Um borð í öllum skipunum verða þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar við að vakta bergmálstæki og vinna úr sýnum.…Lesa meira







