Fréttir

true

Bjóða upp á námskeið í verslun í vefheimum

Nú í haust og einkum í aðdraganda jóla varð mikil aukning í verslun á netinu. Margir vilja eflaust fræðast meira um rekstur vefverslana. Til að koma til móts við þarfir þeirra sem reka slíka verslun, eða íhuga stofnun vefverslunar, hyggst Háskólinn á Bifröst bjóða upp á vefnámskeið þar sem rætt verður hvað einkenni góða vefverslun…Lesa meira

true

Byrjað verður að bólusetja á morgun

Fyrstu skammtarnir af Pfizer bóluefninu gegn Covid-19 eru væntanlegir til landsins nú í dag. Gert er ráð fyrir tíu þúsund skömmtum af bóluefni í fyrstu sendingu en eftir það koma þrjú þúsund skammtar á viku fram í mars. Strax á morgun, þriðjudag, á að hefja bólusetningu og fyrstu skammtarnir eru ætlaðir Covid göngudeild Landspítalans, framlínustarfsfólki…Lesa meira

true

Björgunarsveitir hefja netsölu og selja rótarskot auk flugelda

Nú eru björgunarsveitirnar hér á Vesturlandi að hefja sölu á ýmsum varningi fyrir áramótin, en salan er sem fyrr einn af máttarstólpum fjáröflunar fyrir starf sveitanna. Í ljósi aðstæðna verða ýmis afbrigði frá sölunni miðað við undangengin ár. Auk hefðbundinnar flugeldasölu eru sumar björgunarsveitirnar þegar byrjaðar að selja flugelda í netsölu, þannig að viðskiptavinir panta…Lesa meira

true

Norðan hvassviðrið mun ganga niður með kvöldinu

Víða um vestan- og sunnanvert landið hefur verið bálhvasst frá því í morgun. Gul viðvörun er í gildi um allt landið. Björgunarsveitir voru í morgun kallaðar út í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum, en eftir hádegi fóru hjálparbeiðnir að berast af vestanverðu landinu vegna foktjóns. Útkallsbeiðni barst af Kjalarnesi rétt fyrir hádegi vegna þakklæðningar sem var…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna veðurs allan sunnudaginn

Í kvöld er spáð vaxandi norðanátt með éljum um landið norðan- og austanvert, en þurrt verður sunnan heiða. Norðan- og norðaustan 15-23 m/s á morgun, sunnudag. Rigning eða slydda verður á láglendi norðan- og austanlands og hiti yfir frostmarki, en snjókoma eða slydda undir kvöld og kólnar heldur. Úrkomulítið á sunnanverðu landinu og hiti 1…Lesa meira

true

Mikið flóð í Hvítá í morgun

Mikið flóð var í Hvítá í Borgarfirði í morgun eftir úrhellisrigningu og snjóbráð til fjalla frá því aðfararnótt aðfangadags. Áin flæddi m.a. yfir veginn að Hvítárbakka. Þá hefur hún einnig farið yfir veginn á mós við Ferjukot þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Að sögn heimafólks í Ferjukoti er þetta mesta flóð í ánni í…Lesa meira

true

Jólakort frá Garða- og Saurbæjarprestakalli

Prestar, starfsfólk og safnaðarnefndir í Garða- og Saurbæjarprestakalli bjóða lesendum í lítið ferðalag um kirkjur prestakallsins til að upplifa jólatöfra. Á meðfylgjandi myndbandi er lítil jólakúla sem gaman er að kíkja inn í.Lesa meira

true

Símon syngur Ó helga nótt

Tuttugasti og fjórði og jafnframt síðasti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Símon Orri Jóhannsson sem flutti lagið Ó helga nótt. Lagið er eftir Adolph Adams og textinn eftir Sigurð Björnsson.Lesa meira