
Nýlega voru undirritaðir tímamótasamningar milli stofnhóps eigenda- og ræktenda íslenskra landnámshænsna og Slow Food International sem eru alþjóðleg náttúruverndarsamtök starfandi í rúmlega 150 löndum. Samningarnir Slow Food Presidium-Landnámshænan verða kynntir á alþjóðavettvangi á morgun, 17. desember, og með þeim fær stofnhópur innan Eigenda- og ræktendafélags landnámshænsna (ERL) leyfi til að nota gæðastimpil samtakanna; Rauða snigilinn,…Lesa meira








