Fréttir

true

Ísbjörninn var svo nálægt að ég fann lyktina úr munninum á honum

Dúi Landmark er fæddur á Akranesi árið 1965. Hann var ekki hár í loftinu þegar hann komst í kynni við myndavél og síðan hefur hann varla lagt hana frá sér og liggur mikið magn ljósmynda eftir hann sem m.a. má finna á Ljósmyndasafni Akraness auk þess sem hann hefur nýlega opnað vefsíðuna www.dui.is þar sem…Lesa meira

true

„Þú lést ekki foreldra þína vinna verkin sem þú áttir að gera sjálfur“

Hún er fædd og uppalin vestur á Snæfellsnesi, á bænum Hrísdal í Eyja- og Miklaholtshreppi. Hún er yngst af sex í systkinahópnum. Hún er alin upp af þýskri móður og íslenskum föður. Þetta er hún Guðrún Kristjánsdóttir. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Gunnu Kristjáns á heimili hennar í Borgarnesi. Segir hún blaðamanni sögu sína;…Lesa meira

true

Askasleikir væntanlegur úr fjallinu

Næsti jólasveinn í röð þeirra bræðra er Askasleikir. Hér er kvæði Jóhannesar úr Kötlum flutt honum til heiðurs. Útsending í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar: https://youtu.be/ZUy5oGexIXoLesa meira

true

Samstilltir tvíburar eignast barn með dags millibili

Tvíburarnir Steinunn og Stefanía Svavarsdætur eru samstilltir tvíburar, svo samstilltir reyndar að þær eignuðust barn með eins dags millibili dagana 10. og 11. desember síðastliðinn. Steinunn eignaðist dreng 10. og heitir faðir barnsins Tómas Einar Torres. Stefanía eignaðist stúlku þann 11. og heitir faðir barnsins Benjamín Náttmörður Árnason. Steinunn og Stefanía hafa sterka tengingu við…Lesa meira

true

Ég hef alltaf verið rokkari og verð svo bara svona pastelrokkari með auknum aldri

Blaðamaður var búinn að mæla sér mót við listakonuna Ingu Björnsdóttur í Grundarfirði. Fundarstaðurinn var listagallerí sem hún hefur tekið á leigu. Vegna ókunnugleika, og lítilla merkinga, gekk blaðamaður um og góndi inn um glugga á líklegum stað. Þar fyrir innan var nett kona, með eftirstöðvar af dreadlocks í gráu hári og í svörtum fötum.…Lesa meira

true

Frístundabóndi með framleiðslu úr eigin afurðum

Búa í gömlu sundlauginni og sofa í búningsherbergi karlanna Gamla sundlaugin í Stykkishólmi er í dag fallegt heimili þar sem hjónin Kristín Benediktsdóttir og Gestur Hólm Kristinsson búa. „Maðurinn minn kaupir gömlu sundlaugina árið 2004 en þá hafði hún staðið auð í nokkur ár. Við innréttuðum hana saman og gerðum gamla kvennaklefann að eldhúsi með…Lesa meira

true

Rósa Björk gengur til liðs við Samfylkinguna

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sem undanfarin misseri hefur verið óháður þingmaður en áður félagi í VG, hefur gengið til liðs við Samfylkinguna. „Pólitískar áherslur mínar og Samfylkingarinnar eru nátengdar með mikilvægi á aukinn jöfnuð í samfélaginu þar sem allir geta notið sín á eigin forsendum, burtséð frá stétt eða stöðu en líka á frið og sjálfbærni…Lesa meira

true

Líf og fjör á aðventunni í Stykkishólmi

Síðastliðinn laugardag gerðu Hólmarar sér glaðan dag.  Í bænum var settur upp jólamarkaður þar sem hægt var að kaupa góðgæti og handverk. Þá voru nemendur í Tónlistarskóla Stykkishólms á ferðinni með tónleikalest sem ók um bæinn og stoppaði á völdum stöðum til að flytja jólalög fyrir gesti. Að lokum var settur upp skemmtilegur ratleikur í…Lesa meira

true

Engum boðið en allir eru velkomnir

Hundastapa hjónin, þau Agnes Óskarsdóttir og Halldór Jónas Gunnlaugsson, hafa síðustu tvo áratugi slegið til heljarinnar skötuveislu á heimili sínu. Ár hvert á Þorláksmessu opna þau heimili sitt fyrir fjölskyldu og vinum, bjóða upp á skötu, saltfisk, nýbakað rúgbrauð og tilheyrandi meðlæti, sem allt er heimagert, ásamt rjómatertu, kaffi, konfekti og drykkjum. Er þessi viðburður…Lesa meira

true

Elfa Margrét, Margrét Björt og Hjördís Tinna flytja Jólabæn einstæðingsins

Sextándi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Mæðgurnar Elfa Margrét Ingvadóttir og dætur hennar, Margrét Björt og Hjördís Tinna Pálmadætur sem fluttu lagið Jólabæn einstæðingsins. Gísli á Uppsölum samdi fyrstu tvö versin í laginu og Ómar Ragnarson bætti við því þriðja og samdi þetta fallega lag. Gunnar Gunnarsson,…Lesa meira