
Bíll fór út af veginum skammt sunnan við Þorbergsstaði í Dölum á níunda tímanum í gærkvöldi. Mikil hálka var þegar óhappið átti sér stað. Að sögn lögreglu fór bíllinn hálfa aðra veltu og endaði á hliðinni. Þrennt var í bílnum og voru fluttir með sjúkrabíl til aðhlynningar á heilsugæslustöð HVE í Búðardal, en reyndust óslösuð.…Lesa meira








