Fréttir

true

Ólafsdalshátíð verður haldin á laugardag

Laugardaginn 6. ágúst næstkomandi verður Ólafsdalshátíð haldin níunda sinni í Ólafsdal í Gilsfirði. Er það í annað skiptið sem hátíðin er haldin á laugardegi. „Tókst mjög vel til með það í fyrra. Er það von Ólafsdalsfélagsins að með því fjölgi þeim gestum á hátíðinni sem kjósa að verja helginni í Dölum, Reykhólasveit eða nágrenni,“ segir…Lesa meira

true

Tvítugur og stefnir á oddvitasæti

Hinn tvítugi Rúnar Gíslason sækist eftir oddvitasæti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Sem lið í að koma sér á framfæri fyrir forval VG boðar hann til opins fundar í Landnámssetrinu í Borgarnesi fimmtudaginn 4. ágúst kl. 20:00. „Mig langar að vera meira en bara á bakvið lyklaborðið og þess vegna vil…Lesa meira

true

Lava-hótel Varmaland kaupir Húsmæðraskólann

Í fundagerð frá fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í liðinni viku var lögð fram yfirlýsing um aðalskipti að kaupsamningi um húsnæðið sem áður hýsti Húsmæðraskólann á Varmalandi. Félagið Lava-Hótel Varmaland ehf. verður kaupandi að fasteigninni. Eins og fram kom í Skessuhorni í lok síðasta árs var það samþykkt á fundi byggðaráðs 30. október 2015 að ganga til…Lesa meira

true

Telpa í 60 ár

Ásta Alfreðsdóttir hélt upp á sextugsafmæli sitt laugardaginn 9. júlí með því að opna myndlistasýninguna „Telpa í 60 ár“ í Galleríi Bjarna Þórs á Akranesi, en hún er svo lukkuleg að vera gift honum Bjarna. „Ég var ekki alveg viss hvernig ég vildi halda upp á þessi tímamót en vissi að ég vildi gera það…Lesa meira

true

Nýr lögregluþjónn í Dölum

Níels Hermannsson tók við starfi lögregluþjóns í Dölunum 1. febrúar síðastliðinn en hann hefur starfað sem lögregluþjónn frá árinu 2003. „Ég er menntaður húsamálari og vann lengi við það. Ég lauk námi við lögregluskólann árið 2003 en hafði þá verið búinn að vinna sem héraðslögregla í þrjú ár,“ segir Níels í samtali við Skessuhorn. Níels…Lesa meira

true

Smíðar handverk í skúrnum

„Þetta var bara gamalt lambahús fyrst þegar ég flutti hingað fyrir ellefu árum. Við breyttum þessu í skúr og hérna smíða ég,“ segir Aðalsteinn Vilbergsson um það leyti sem blaðamaður gengur inn í vinnuaðstöðu Aðalsteins. Skúrinn er ekki ýkja stór en snyrtilegur er hann og við blasir fín vinnuaðstaða ásamt fallegu handverki úr tré sem…Lesa meira

true

Börn á Reykhólum berjast gegn hraðakstri

Skessuhorn greindi frá því snemma þessa mánaðar að hraðahindrun hefði verið komið fyrir á Hellisbraut á Reykhólum. Er það fyrsta hraðahindrunin sem sett hefur verið upp í þorpinu. Umferðareyjurnar sem mynda hindrunina voru settar upp eftir að Björk Stefánsdóttir og Herdís Erna Matthíasdóttir sendu hreppsnefnd erindi sitt um umferðaröryggi. Erindi varðandi hraðahindrun við Karlseyjarveg hefur…Lesa meira

true

Lagfæringar á Setbergskirkju

Á dögunum var lögð lokahönd á lagfæringar Setbergskirkju við Grundarfjörð þetta árið, en samkvæmt upplýsingum frá formanni sóknarnefndar er um reglubundið viðhald að ræða. Setbergskirkja er önnur kirkna Setbergsprestakalls ásamt Grundarfjarðarkirkju, sem er einmitt 50 ára á morgun, sunnudaginn 31. júlí. Haldið verður upp á afmæli Grundarfjarðarkirkju með viðhöfn, eins og áður hefur komið fram í…Lesa meira

true

Markaður í Englendingavík í dag

Matar- og flóamarkaður verður haldinn í Englendingavík í Borgarnesi í dag, laugardaginn 30. júlí. Matur, kökur og alls kyns vörur verða á markaðsverði. Spákona verður á staðnum og leikdót fyrir börnin. Sultukeppni með veglegum vinningum. Markaðurinn verður opnaður ekki seinna en 13.00 og verður opinn til 18.00.Lesa meira

true

Förum varlega í umferðinni um Verslunarmannahelgina

Margir verða á faraldsfæti þessa stærstu ferðahelgi ársins. Til að mynda eru bæjarhátíðir víða um land og umferðin verður þung. Gott er að hafa eitt og annað í huga þegar ferðast er um landið í mikilli umferð. Í tilkynningu frá VÍS er minnt á mikilvægi þess, við ofangreindar aðstæður, að stíga létt á bensíngjöfina. Halda…Lesa meira