Fréttir

true

Gul og appelsínugul viðvörun um land allt

Í dag er gul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu og gildir til minættis í kvöld, en appelsínugul að auki fyrir svæðið sunnan jökla á suðausturlandi fram á morgundaginn. Fjallvegir eru nú ófærir og varað við ferðalögum milli landshluta enda lélegt skyggni og afar slæm akstursskilyrði. Við Faxaflóa er spáð norðan stormi, 18-25 m/s, með…Lesa meira

true

Björgunarsveitir komu vegfarendum til aðstoðar

Nokkur erill hefur verið hjá björgunarsveitum landsins frá því síðdegis í gær. Hefur ökumönnum sem lent hafa í vandræðum vegna færðar og veðurs, verið komið til aðstoðar. Bílar hafa setið fastir, lent utan vegar og einn bíll fór á hliðina. Flest verkefni björgunarsveita hafa verið á Norður- og Vesturlandi, en engar tilkynningar borist um slys…Lesa meira

true

Fjórtán greindust með Covid í gær

Fjórtán voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim sem greindust voru þrettán í sóttkví. Í dag eru 205 í einangrun hér á landi vegna veirunnar og 670 í sóttkví. 38 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú…Lesa meira

true

Þrettán hrossaræktarbú tilnefnd til verðlauna

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem Ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 50 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár…Lesa meira

true

Evrópskt markaðsleyfi fyrir bóluefni í sjónmáli

Lyfjastofnun Evrópu hafa borist umsóknir um skilyrt markaðsleyfi fyrir tvö bóluefni við Covid-19. Þetta er annars vegar bóluefni þróað af BioNTech og Pfizer og hins vegar bóluefni sem Moderna Biotech hefur þróað. „Stofnunin mun beita flýtimati á umsóknirnar. Niðurstaða gæti legið fyrir innan nokkurra vikna, en það fer eftir því hvort gögnin sem berast sýna…Lesa meira

true

Skaginn syngur inn jólin – gluggi númer 3

Þriðji gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það voru Ylfa og Hallur sem fluttu lagið Jingle Bell Rock. Hlekkinn á lagið má finna hér fyrir neðan.  Lesa meira

true

Fjölbreytt starfsemi nefnda og deilda um land allt hjá FKA

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, er öflugt tengslanet kvenna úr öllum greinum atvinnulífsins. Félagið er hreyfiafl sem eflir fjölbreytileika atvinnulífsins, styður kvenleiðtoga í að sækja fram og sameinar konur til aukins sýnileika og þátttöku um land allt. FKA Vesturland var stofnað fyrir nokkrum árum og er deild innan samtakanna. „Ef þú vilt stórefla tengslanetið þitt,…Lesa meira

true

Byrjað að grafa fyrir fjölbýlishúsi að Þjóðbraut 3

Byggingarfélagið Bestla hefur hafið vinnu við að grafa fyrir undirstöðum undir fjölbýlishúsið að Þjóðbraut 3. Það er fyrirtækið Snókur verktakar ehf. sem sér um uppgröftinn. Áætlað er að þeirri vinnu ljúki fyrir jól og að uppsteypa hússins hefjist strax eftir áramót. Gert er ráð fyrir að íbúðir í húsinu verði tilbúnar til afhendingar sumarið 2022.…Lesa meira

true

Ófært á fjallvegum – gul viðvörun fyrir landshlutann

Hálka eða hálkublettir eru nú á vegum á Vesturlandi; skafrenningur og víða mjög hvasst. Gul viðvörun er í gildi í dag og á morgun fyrir allt landið, en að auki appelsínugul fyrir suðausturland.  Flughálka er á kafla fyrir austan Arnarstapa á Snæfellsnesi. Holtavöruheiði og Fróðárheiði eru lokaðar og Brattabrekka ófær.Lesa meira

true

Útgáfa Skessuhorns í desember

Skessuhorn kom út í dag og mun samkvæmt venju koma út næstu tvo miðvikudaga; 9. desember og Jólablaðið 2020 kemur svo út miðvikudaginn 16. desember. Það verður langstærsta blað ársins og jafnframt það síðasta. Fyrsta blað nýs árs kemur svo út 6. janúar. Til að koma á framfæri efni og auglýsingum í Jólablað Skessuhorns er…Lesa meira