Fréttir

true

Kveikt á jólatrénu á Akranesi

Mikil stemning var á Akratorgi á Akranesi í morgun þegar kveikt var á ljósum jólatrésins. Börn streymdu að úr tveimur elstu árgöngum leikskólanna á Akranesi, sum komu gangandi og önnur á rútum. Mikill spenningur lá í loftinu og skein gleðin úr augum barnanna. Torginu var skipt í fjögur aðskilin svæði og hafði hver leikskóli sitt.…Lesa meira

true

Átta greindust með veiruna í gær

Átta voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim átta sem greindust voru þrír í sóttkví. Í dag eru 187 í einangrun á landinu vegna veirunnar og 716 manns í sóttkví. 41 er nú á sjúkrahúsi og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú…Lesa meira

true

Grettislaug og leikskólalóð meðal framkvæmda

Sveitarstjórn Reykhólahrepps afgreiddi samhljóða á fundi sínum í liðinni viku fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir á Grettislaug en laugin þarfnast endurbóta. Eftir lagfæringar er gert ráð fyrir að sá kostnaður sem fer í að reka laugina gæti lækkað umtalsvert. Þá verður farið í framkvæmdir á leikskólalóð og nauðsynlegar hafnarframkvæmdir sem þegar…Lesa meira

true

Sitja í toppsæti riðilsins

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik sigraði Kósovó glæsilega í forkeppni heimsmeistaramótsins 2023 í gær. Íslendingum gekk ekki vel í upphafi leiks og Kósovó var með yfirhöndina. Íslenska liðið náð sér svo á strik undi lok fyrsta leikhluta og skoraði tíu stig á síðustu tveimur mínútum leikhlutans. Íslenska liðið hélt uppteknum hætti í öðrum leikhluta og þegar…Lesa meira

true

Eiga kost á sálrænum stuðningi

Landbúnaðarráðherra, formaður Bændasamtaka Íslands og fulltrúar sveitarfélaga í Skagafirði hafa undirritað samkomulag við Kristínu Lindu Jónsdóttur sálfræðing, um að veita sauðfjárbændum sálrænan stuðning og ráðgjöf vegna riðuveiki sem greinst hefur í Skagafirði. Kristín Linda er klínískur sálfræðingur og rekur eigin sálfræðistofu, Huglind ehf. Í verkefninu felst að heimilisfólki á þeim búum þar sem riðuveiki hefur…Lesa meira

true

Gul viðvörun í kvöld og fram á nótt

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun um mestallt land í kvöld. Frá kl. 19:00 við Faxaflóa og 20:30 við Breiðafjörð er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu. Þetta snýst í rigningu um eða fyrir miðnætti og akstursskilyrði verða erfið.Lesa meira

true

Viðskipti með húsnæði á Vesturlandi í október

Þjóðskrá Íslands tekur mánaðarlega saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi þinglýstra fasteignakaupasamninga í október á Vesturlandi var 52 og velta í þeim viðskiptum alls 1.854 milljónir króna. Það gerir meðalverð í hverjum viðskiptum upp á 35,6 milljónir. Í þessum viðskiptum skiptu 20 sérbýli um eigendur, 20 viðskipti voru með…Lesa meira

true

Hækka tómstundastyrk

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag að hækka árlegan tómstundastyrk úr 60 þúsund krónum í 70 þúsund krónur á ári frá 1. janúar næstkomandi. Styrkurinn er ætlaður börnum og ungmennum að 18 ára aldri með lögheimili í sveitarfélaginu.Lesa meira

true

Verulega breytt neyslumynstur í kjöti

Sala á kjöti frá afurðastöðvum dróst saman um 10,5% í októbermánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Þá hafði sala dregist saman á síðasta ársfjórðungi um 9,8%, en um 5% ef miðað er við tólf mánaða tímabil samkvæmt tölum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Bændablaðið skoðaði sölu á einstökum tegundum. Langmestur samdráttur var í október á…Lesa meira

true

Guðni kjörinn formaður Landssambands hestamannafélaga

Guðni Halldórsson frá Þverholtum á Mýrum er nýr formaður Landssambands hestamannafélaga. Hann tekur við af Lárusi Ástmari Hannessyni í Stykkishólmi. Formannskosningu lauk á Landsþingi LH nú fyrir skömmu. Guðni hlaut 92 atkvæði í formannskosningunni en Ólafur Þórisson 68 atkvæði. Frá þessu var greint á síðu Eiðfaxa. Sjá hér.Lesa meira