Fréttir

true

Ríkisstjórnin samþykkir að setja lög á verkfall flugvirkja

Dómsmálaráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frumvarps sem lagt verður fyrir Alþingi síðar í dag sem bindur enda á verkfall flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands. Þar með styttist sá tími sem landsmenn verða án starfshæfrar björgunarþyrlu. Vegna viðhaldsleysis hefur engin þyrla verið tiltæk síðan í fyrrakvöld. Í yfirlýsingu frá Áslaugu Örnu Sigurbjörndóttur dómsmálaráðherra vegna málsins…Lesa meira

true

Glæsilegur sigur hjá íslensku stelpunum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sigraði Slóvakíu 3-1 í gær þegar liðin mættust ytra í undankeppni EM 2022. Var þetta næstsíðasti leikur Íslands í undankeppninni en stelpurnar mæta Ungverjalandi í síðasta leik sínum á þriðjudaginn. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Ísland en á 25. mínútu kom Mária Mikolajová Slóvakíu yfir og lítið gekk hjá íslensku stelpunum…Lesa meira

true

Íslensku strákarnir sigruðu örugglega

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik sigraði í gær Lúxemborg með fjórtán stigum eða 90:76 í forkeppni HM 2023 í Slóvakíu. Leikurinn gekk ekki nógu vel framan af hjá íslensku strákunum, þeir hittu illa og í hálfleik var Lúxemborg 38-34 yfir. Í þriðja leikhluta komst Lúxemborg fljótlega í stöðuna 47-40 en þá fóru hlutirnir að gerast og…Lesa meira

true

Vilja leyfa veiðar á gæs og álft utan hefðbundins veiðitíma

Þrjá þingkonur; þær Þórunn Egilsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir, hafa á Alþingi lagt fram tillögu til þingsályktunar sem gerir ráð fyrir að leyfa veiðar á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma. Verði tillagan samþykkt yrði umhverfis- og auðlindaráðherra falið að útbúa tillögur um heimild til tímabundinna og skilyrtra veiða á…Lesa meira

true

Tuttugu voru greindir með veiruna í gær

Í gær voru 20 greindir með kórónuveiruna hér á landi samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og þar af voru einungis níu í sóttkví. Þetta er mesti fjöldi smita sem hefur greinst frá 10. nóvember sl. Fólki hefur fjölgað milli daga bæði í einangrun og sóttkví á landinu. Í dag eru 176 í einangrun vegna Covid-19…Lesa meira

true

Stykkishólmur í Ratleikjaappinu

Sýsla er lítið sprotafyrirtæki sem vinnur með íslenskt hand- og hugverk. Fyrirtækið gaf á dögunum út Ratleikja-appið. Appið býður upp á ratleik á milli bæja á Íslandi og er aðgengilegt öllum. Sjö sveitarfélög, þar á meðal Stykkishólmsbær og Akranesbær, eru nú komin með ratleik í appið. Í sumar var settur upp ratleikur í Stykkishólmi sem…Lesa meira

true

Leggur til að ríkið niðurgreiði flutning og dreifingu raforku til garðyrkjunnar

Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur lagt fram frumvarp um breytingar á búvörulögum. Frumvarpið leggur til að á árunum 2021-2024 verði vikið frá ákvæðum gildandi búvörusamninga og að ríkissjóður muni á þessum árum greiða niður allan kostnað við flutning og dreifingu raforku vegna framleiðslu garðyrkjuafurða. Jafnframt skuli ríkisjóður greiða helming kostnaðar vegna uppbyggingu á dreifikerfi…Lesa meira

true

Grásleppusjómenn vilja veiðarnar í aflamark

Yfirgnæfandi meirihluti grásleppusjómanna í Stykkishólmi vill að grásleppan verði sett í aflamark. Á aðalfundi Bátafélagsins Ægis í Stykkishólmi, sem fram fór fyrr í þessum mánuði, voru þingmenn hvattir til að fara í þá vinnu að setja grásleppuna í aflamark og tryggja þannig stöðugleika í greininni. Telja þeir jafnframt að grásleppusjómenn á landsvísu séu hlynntir aflamarki…Lesa meira

true

Aðventudagur kvenfélagsins með breyttu sniði

Í áraraðir hefur Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði staðið fyrir aðventudegi fyrsta sunnudag í aðventu. Þá hefur tíðkast að vera með leikfangahappdrætti, markað og tónlistaratriði svo eitthvað sé nefnt. Nú hefur sú ákvörðun verið tekin að dagurinn verði með breyttu sniði þetta árið. Dregið verður í jólahappdrættinu á veraldarvefnum ásamt því að snjallratleikur verður…Lesa meira

true

Bókhalds- og rekstrarþjónustan flutt að Borgarbraut 61

Bókhalds- og rekstrarþjónustan sf. í Borgarnesi hefur verið flutt í nýtt húsnæði við Borgarbraut 61, í rýmið þar sem Tækniborg var síðast. Það eru bræðurnir Styrmir Már og Elfar Már Ólafssynir sem reka Bókhalds- og rekstrarþjónustuna en þeir tóku við fyrirtækinu af föður sínum á síðasta ári. „Við þurftum orðið meira pláss. Það fylgir þessu…Lesa meira