Fréttir

true

Tíu voru greindir með veiruna í gær

Tíu voru greindir með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Þar af voru sex í sóttkví. 52 liggja nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar og þar af eru þrír á gjörgæslu. Í dag eru 232 í einangrun á landinu vegna Covid-19 og 318 í sóttkví sem er fækkun frá því í gær þegar…Lesa meira

true

Landsbyggðin kallar

Sjö landshlutasamtök á landsbyggðinni hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og…Lesa meira

true

Öxulþungatakmarkanir á Hvítárbrú norðan Húsafells

Á vef Vegargerðarinnar er sagt frá því að leyfilegur ásþungi á Hvítárbrú milli Húsafells og Kalmanstungu hafi verið tekinn niður í fimm tonn. Undirstöður brúarinnar eru laskaðar. Fyrir ökumenn venjulegra fólksbíla og jeppa hefur þetta engar breytingar í för með sér en fyrir stærri flutninga- og vörubíla hefur þetta áhrif. Verktakar sem vinna við vegagerð…Lesa meira

true

Miðstigi Auðarskóla er nú kennt í Leifsbúð

Í vikunni má segja að þriðju lotu samkomutakmarkana vegna Covid-19 hafi lokið. Henni fylgdu ýmsar hertar aðgerðir og takmarkanir m.a. á skólahaldi. Var nemendur á miðstigi og unglingastigi Auðarskóla í Dölum til skiptis kennt heima eða í skólanum sínum. Þetta fyrirkomulag reyndi vissulega bæði á börnin og foreldra þeirra. Til að koma til móts við…Lesa meira

true

Verkalýðsfélag Akraness flutt í nýjar höfuðstöðvar

Verkalýðsfélag Akraness flutti á dögunum starfsemi sína í nýtt húsnæði við Þjóðbraut 1. Eldra húsnæði félagsins við Sunnubraut á Akranesi, sem er um 100 fermetrar auk 40 fermetra fundarsalar undir súð, var orðið alltof lítið og rúmaði ekki lengur starfsemi félagsins. Hið nýja húsnæði er hins vegar um 300 fermetrar og hátt til lofts og…Lesa meira

true

Útieldstæði tekið í notkun á Varmalandi

Lokið er við að byggja upp eldstæði á skógarsvæðinu á Varmalandi í Borgarfirði. Þar hefur grunnskólinn nýtt sér aðstöðuna til útikennslu til margra ára. „Fyrir nokkrum árum þegar Imba okkar, Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum, lét af störfum að loknum kennsluferli sínum ákvað hún að gefa ákveðna fjárhæð fyrir hvert ár sem hún starfaði við skólann…Lesa meira

true

Spakir ökumenn á akstri við leikskóla

Í síðustu viku var lögregla í ómerktum bíl við radarmælingar á Ketilsflöt nálægt leikskólanum Akrasel á Akranesi. Mælingin átti sér stað á háannatíma, á milli kl. hálf átta og hálf níu að morgni. 138 bílar óku framhjá og ók enginn svo hratt að refsing hlytist af. Sá sem hraðast ók var á 33 kílómetra hraða.…Lesa meira

true

Ótímabundin heimild til búnaðarkaupa fyrir fólk með sykursýki-1

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að Sjúkratryggingum Íslands sé eftirleiðis heimilt að ákveða að innkaupaheimildir gildi ótímabundið fyrir einstaklinga með ævilangt sjúkdómsástand, eins og t.d. fyrir einstaklinga með sykursýki 1. Þessi heimild var aðeins gefin út með 5 – 10 ára gildistíma en nú er búið að breyta til hagræðis fyrir alla sem hlut eiga að máli.…Lesa meira

true

Alltof mörg heimili eru berskjölduð fyrir eldsvoðum

Ný könnun Gallup um eldvarnir á heimilum sýnir að alltof mörg heimili eru vanbúin nauðsynlegum eldvarnabúnaði og þar með berskjölduð fyrir eldsvoðum. „Það er brýnna en nokkru sinni að hvetja fólk til að efla eldvarnir heimilisins, ekki síst í ljósi þess að það sem af er ári hafa fleiri látist í eldsvoðum hér á landi…Lesa meira

true

Hafa leigt kvóta á fiskveiðiárinu fyrir þrjá milljarða

Frá 1. september til og með 17. nóvember, þegar liðnir eru tveir og hálfur mánuður af fiskveiðiárinu, hafa alls tæp nítján þúsund tonn af veiðiheimildum verið leigð milli útgerða fyrir tæpa 2,9 milljarða króna. Um helmingur viðskiptanna er með veiðiheimildir í þorski, rúmur 1,4 milljarður, en að magni til er þorskur aðeins um 5.700 tonn…Lesa meira