Fréttir

true

Stýrivextir lækkaðir um fjórðung

Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti í morgun vaxtaákvörðun sína en þar eru stýrivextir lækkaðir um fjórðung, eða 0,25 prósentustig. Eru meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, því 0,75% eftir ákvörðunina. Í tilkynningunni segir m.a. að fjölgun COVID-19 smita á haustdögum og hertar sóttvarnir valdi því að dregið hafi úr þeirri viðspyrnu í efnahagslífinu sem hófst…Lesa meira

true

Hefja byggingu nýs skrifstofuhúss á Alþingisreit

Samningur Alþingis við ÞG verktaka um þriðja áfanga byggingar fimm hæða skrifstofuhúss á Alþingisreit var undirritaður í dag. Undir samninginn rituðu Steingrímur J Sigfússon forseti Alþingis og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri fyrir hönd Alþingis og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verktaka. Í þriðja áfanganum felst uppsteypa og fullnaðarfrágangur. Flatarmál aðalbyggingarinnar verður 5.073 m² að viðbættum 1.307 m²…Lesa meira

true

Annir hjá hárskerum eftir að opna mátti aftur

Í morgun var slakað á samkomutakmörkunum vegna Covid-19. Meðal annars máttu hárgreiðslustofur og hárskerar opna að nýju eftir að hafa verið gert að loka 31. október síðastliðinn. Ljóst er að uppsöfnuð eftirspurn er því til staðar. Í Skessuhorni, sem kom út í dag, er meðal annars greint frá því að Pastelbúðin var opnuð í Ólafsvík…Lesa meira

true

Níu af ellefu nýjum covidsjúklingum voru í sóttkví við greiningu

Í gær greindust ellefu með kórónuveiruna innanlands og voru níu af þeim í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Nú eru 55 á sjúkrahúsi með sjúkdóminn, þar af fjórir á gjörgæslu. 267 eru nú í einangrun, samanborið við 302 í gær. Þá eru 384 í sóttkví í dag og hefur fækkað um…Lesa meira

true

Tíu lóðir við Sementsreit auglýstar til úthlutunar

Akraneskaupstaður auglýsir í Skessuhorni sem kom út í dag 17 lóðir til úthlutunar. Þar á meðal eru tíu nýjar lóðir sem standa við Suðurgötu, nánar tiltekið við Sementsreitinn, auk tveggja eldri lóða við sömu götu. Þá eru í sömu auglýsingu fjórar lóðir við Asparskóga til úthlutunar, ásamt einni lóð við Akralund. Samkvæmt fundargerð bæjarráðs 15.…Lesa meira

true

Fjölbýlishús reist á nokkrum klukkutímum

Akurnesingar tóku margir eftir flutningabílum með gríðarstóra farma í byrjun vikunnar. Þeir óku áleiðis frá Akraneshöfn, upp bæinn í lögreglufylgd. Um er að ræða húseiningar á vegum fyrirtækisins Modulus ehf. en fyrirtækið er nú að reisa 12 íbúða fjölbýlishús við Asparskóga. Einingarnar eru frá Byko-Lat í Lettlandi. Íbúðirnar eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Modulus…Lesa meira

true

Minni grímuskylda og óheft útivist

Samkvæmt nýrri reglugerð sem gildi tekur í dag verða nemendur 5.–7. bekk grunnskóla undanþegin grímuskyldu og tveggja metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart börnum á leikskólaaldri og nemendum í 1.-7. bekk er einnig afnumin. Þá er heimilt að nemendahópar blandist á útisvæðum leik- og grunnskóla. Íþrótta-, æskulýðs- og…Lesa meira

true

Pastel opnar í dag í nýju húsnæði í Ólafsvík

Hársnyrtikofan Pastel í Ólafsvík hefur flutt starfsemi sína að Ólafsbraut 19 í húsnæði sem áður hýsti veitingastað. María Guðrún Guðmundsdóttir eigandi Pastel segir að aðstaðan sé öllu betri og stærri en í gamla húsnæðinu. Eiginmaður Maríu, Gísli Bjarnason, sá að mestu leyti um breytingar á staðnum og er óhætt að þarna sé listamaður að verki…Lesa meira

true

Kynnir endurskoðað frumvarp um fæðingar- og foreldraorlof

Ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leiti samþykkt frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um fæðingar- og foreldraorlof. Frumvarpið tekur mið af athugasemdum sem bárust þegar það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Alls er gert ráð fyrir að 19,1 milljörðum króna verði varið í fæðingarorlof á árinu 2021 sem er tæplega tvöföldun á þeim fjármunum sem…Lesa meira

true

Riða á einum bæ til viðbótar á Tröllaskaga

Riðusmit hefur verið staðfest á einum bæ til viðbótar í Tröllaskagahólfi. Bærinn er Minni-Akrar og er staðsettur í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Tilfellið var staðfest í sýni sem tekið var í sláturhúsi og greint á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Á búinu er nú um hundrað fjár.…Lesa meira