
Riðusmit hefur verið staðfest á einum bæ til viðbótar í Tröllaskagahólfi. Bærinn er Minni-Akrar og er staðsettur í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Tilfellið var staðfest í sýni sem tekið var í sláturhúsi og greint á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Á búinu er nú um hundrað fjár.…Lesa meira








