Fréttir

true

Fækkar í sóttkví á Vesturlandi

Í gær voru greind 8 kórónuveirusmit á Íslandi. Af þeim voru aðeins tveir í sóttkví eða 25%. 822 sýni voru tekin við skimun innanlands í gær en 406 á landamærunum. Öll smitin greindust við einkennasýnatöku. Nýgengi innanlandssmita hefur lækkað hratt undanfarið. Hæst fór það í 291,5 þann 17. okt en var í gær 87,8. Nýgengi…Lesa meira

true

Telja þörf á nýrri og stærri Breiðafjarðarferju

Stærð og búnaður í Breiðarfjarðarferjunni Baldur hefur sætt aukinni gagnrýni undanfarið. Hagsmunaaðilar leggja áhersla á mikilvægi þess að styrkja þurfi ferjusiglingar um Breiðafjörð með stærri og nýrri ferju til að anna aukinni þörf samfélagsins og jafnframt er vakin athygli á að í ferjunni sé ekki varavél. Í því sambandi var m.a. haft eftir bæjarstjóra Vesturbyggðar…Lesa meira

true

Norðurál óskar eftir að trúnaði um orkusamninga verði aflétt

„Norðurál telur að nýútkomin skýrsla Fraunhofer um samkeppnishæfni íslenskrar stóriðju sé um margt góð og fagnar því að iðnaðarráðherra skuli hafa tekið það skref að láta óháðan aðila meta samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi, með tilliti til raforkuverðs. Stóriðja er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs og er háð samkeppnishæfu raforkuverði,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Hvað…Lesa meira

true

Verulegar fjárhæðir hafa sparast í ferðakostnaði ríkisins

Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu níu mánuðum ársins um 1,8 milljarða króna og fór úr 3 milljörðum árið 2019 í tæpa 1,2 ma.kr. árið 2020. Lækkunin nemur um 60% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru. Með ferðakostnaði er átt við ferðalög og uppihald á ferðalögum á Íslandi og erlendis. Tölurnar ná til A-hluta stofnana…Lesa meira

true

Ógnandi viðskiptavinur beit í harðfisk

Rétt fyrir miðnætti að kvöldi föstudags í síðustu viku barst Neyðarlínu tilkynning um ógnandi viðskiptavin sem neitaði að nota grímu í verslun Olís við Brúartorg í Borgarnesi. Þegar lögregla mætti á staðinn hitti hún fyrir hinn meinta ógnandi viðskiptavin sem sat í bíl sínum. Sá þverneitaði að hafa verið ógnandi. Sagðist hafa verið með grímu…Lesa meira

true

Opnar veitingastað á Hellissandi

Sylvaine Scharapenko hefur ekki látið kórónuveirufaraldur stoppa sig í að elta draumana og stefnir hún á að opna nýjan veitingastað á Hellissandi á næstu dögum. Veitingastaðurinn, sem hefur fengið nafnið RAM, mun vera til húsa þar sem Kaffi Sif var áður. Sylvaine er 52 ára kona, uppalin nærri Lutherstadt Wittenberg, sem er mitt á milli…Lesa meira

true

Með skottið fullt af gjöfum til úkraínskra barna

Verkefnið „jól í skókassa“ er orðið árlegur viðburður sem KFUM og KFUK á Íslandi skipuleggur hér á landi. Félagar í Grundarfirði taka virkan þátt. Undanfarin misseri hafa þær Anna Husgaard Andersen og Salbjörg Nóadóttir tekið á móti ófáum jólakössum frá ungum Grundfirðingum. Gefendur eru á öllum aldri en langflestir koma þó úr grunnskólanum. Í venjulegu…Lesa meira

true

Lýsa upp gamla héraðsskólahúsið til minningar um Kolbrúnu

Búið er að koma fyrir ljóskösturum við hús gamla Héraðsskólans í Reykholti. Ljósin eru minningargjöf um Kolbrúnu Jónsdóttur frá Reykholti sem lést í janúar á þessu ári. Gefendur eru bræður hennar; Þorvaldur, Þórir og Eiríkur Jónssynir, auk Haraldur eiginmanns hennar og fjölskyldu . Húsið verður nú upplýst í skammdeginu til minningar um Kolbrúnu, eða Dollu…Lesa meira

true

Skemmdarverk á gistiheimili

Á mánudag barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk í gistiheimili í Grundarfirði. Þar hafði verið brotist inn og nokkrar skemmdir unnar með því að sparka í hurðir og spenna nokkrar hurðir upp. Gistiheimilið er ekki opið og enginn var á staðnum um helgina. Starfsmenn sem mæta til vinnu á mánudag sáu að farið hafði verið inn…Lesa meira

true

Kostar 990 krónur að horfa á þegar Ísland mætir Ungverjalandi í kvöld

Karlalandsliðið í fótbolta mætir í kvöld Ungverjalandi í leik um sæti á Evrópumótinu í fótbolta næsta sumar. Leikurinn hefst kl 19:45 og verður sýndur í beinni útsendingu á stöð 2 sport. Fyrir þá sem ekki hafa áskrift af stöð 2 sport er hægt að kaupa sérstaklega aðgang að leiknum fyrir 990 krónur í gegnum myndlykla…Lesa meira