
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akranesi munu leggja það til á fundi bæjarstjórnar síðdegis í dag að ákvörðun um val á leið við uppbyggingu á Fjöliðjunni, vernduðum vinnu- og hæfingarstað, verði frestað. Frá þessu er greint á facebooksíðu flokksins. Fresturinn gæfi bæjaryfirvöldum tækifæri til ítarlegrar skoðunar á uppbyggingaráformum með hliðsjón af breyttu skipulagi á aðliggjandi lóðum og…Lesa meira








