Fréttir

true

Segjast engin tengsl hafa við Burbanks Capital

Forsvarsmenn Silicor Materials segja fyrirtækið engin tenstl hafa við hollenska félagið Burbanks Capital, félagið sem hyggst fjármagna byggingu nýs einkasjúkrahúss í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir enn fremur að Burbanks Capital sé ekki í hópi þeirra fjárfesta, íslenskra sem erlendra, sem standi að uppbyggingu fyrirhugaðs sólarkísilvers Silicor á Grundartanga. Tilefni…Lesa meira

true

„Búmerang” högg á Hamarsvelli

Á golfvellinum að Hamri ofan Borgarness gerðist það í vikunni að höggfastur en óheppin golfari sló golfboltann í stein og fékk hann til baka í höfuðið af miklum krafti.  Féll maðurinn við og lá eftir í grasinu.  Var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar, en talið var að meiðsl hans hefðu verið minniháttar.Lesa meira

true

Óvæntir gestir á góðri stund

Nú um helgina fór fram bæjarhátíðin Á góðri stund í Grundarfirði. Hátíðin gekk vel og mikið líf og fjör var í bænum um helgina. „Það fór allt vel fram um helgina,“ sagði Aldís Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Á föstudaginn bættist heldur betur í tölu hátíðargesta þegar tvö skemmtiferðaskip lögðu að bryggju í Grundarfirði. Þetta voru skipin Costa…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu í fallbaráttuslag

Skagakonur mættu FH í tíundu umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Kaplakrika í Hafnarfirði. Um fallbaráttuslag var að ræða, en ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar með fjögur stig. Gestgjafarnir úr hafnarfirði voru í 8. sæti með sjö stig. Sigur ÍA hefði því getað lift liðinu upp fyrir KR…Lesa meira

true

Aðalsteinn og Sigurður leiða Íslandsmótið

Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fór fram dagana 22. og 23. júlí í Skagafirði. Það var Bílaklúbbur Skagafjarðar sem stóð fyrir keppninni en þessi árvissa keppni vekur bæði áhuga og eftirtekt rallýáhugafólks þar sem skipulag og framkvæmd er ávallt til eftirbreytni. Það var því margt um manninn, tæplega tuttugu áhafnir voru mættar til leiks auk…Lesa meira

true

Eldur í Norðurál í nótt

Eldur kom upp á starfsvæði álvers Norðuráls á Grundartanga í nótt. Gat kom á pott í kerskála álversins og ál lak niður í kjallara. Álið rann að Bobcat lyftara, sem þar var staðsettur, með þeim afleiðingum að kviknaði í honum. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað á svæðið klukkan 00:30. Að sögn Björns Þórhallssonar varaslökkviliðsstjóra…Lesa meira

true

Vakinn upp af Pokémon þjálfara

Rétt eftir hádegi dag einn í liðinni viku var íbúi í Jörundarholti vakinn upp af værum svefni eftir næturvakt þegar barið var að dyrum. Þegar íbúinn fór til dyra stóð tólf ára drengur sem íbúinn kannaðist ekki við fyrir utan og bað um að fá að komast inn vegna þess að þar átti að leynast…Lesa meira

true

Fullt af laxi að stökkva í lóninu

„Þetta var meiriháttar, bleikjan tók og tók, skemmtilegir fiskar,“ segir Þór Hauksson prestur Árbæjarkirkju eftir að hafa veitt hverja bleikjuna af annarri í Hvolsá í Dölum. Allt tveggja til þriggja punda bleikjur. „Maður hefur beðið eftir þessu augnabliki lengi. Fiskarnir tóku vel og það var fjör að glíma við þá hvern af öðrum. Þetta stóð…Lesa meira

true

Sorpgjöld endurákvörðuð á Akranesi

Sorpgjöld vegna ársins 2016 hjá Akraneskaupstað hafa verið endurákvörðuð með hliðsjón af úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 14. apríl síðastliðnum. Í frétt sem birtist á vef Akraneskaupstað kemur fram að úrskurðarnefndin taldi gjaldskrá Akraneskaupstaðar ólögmæta vegna formgalla þar sem heilbrigðisfulltrúi hafi ekki haft formlegt umboð heilbrigðisnefndar Vesturlands til að veita umsögn um gjaldskrána samkvæmt…Lesa meira

true

Enn eitt umferðaróhappið við Grjótá

Snemma í júlí fór fólksbifreið útaf við Grjótárbrúna á Hítardalsvegi og hefur bifreiðin ekki verið fjarlægð af svæðinu síðan. Íbúi á svæðinu segir að umferðaróhappið sé það fimmta á svæðinu á undanförnum árum; tveir þessara bíla hafa farið ofan í ána. Aðstæður við Grjótá hafa löngum verið taldar hættulegar og hafa íbúar á svæðinu kallað…Lesa meira