Fréttir

true

Stór jarðskjálfti fannst víða

Jarðskjálfti að stærðinni 5,7 á Richterkvarða varð um fjóra kílómetra vestur af Krýsuvík á Reykjanesi kl. 13:43 núna rétt áðan. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Vel fannst fyrir skjálftanum á Akranesi, þar sem meðal annars hristust bílar á bílastæðinu fyrir utan skrifstofu Skessuhorns. Þá hefur blaðið einnig heimildir fyrir því að fundist hafi fyrir skjálftanum…Lesa meira

true

62 innanlandssmit í gær

Alls greindust 62 með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru 29 í sóttkví við greiningu, sem er nokkuð lægra hlutfall en verið hefur síðustu daga. Alls eru nú 25 á sjúkrahúsi hérlendis vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Átta smit greindust á landamærunum og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í þremur tilvikum. Alls greindust…Lesa meira

true

Veltu fyrir sér hvað elda mætti úti

Nemendur í 2. bekk AT í Grunnskóla Snæfellsbæjar kunnu vel að meta heita kakóið sitt sem hitað var yfir eldi í útikennslustofu skólans á Hellissandi. Kakóið fengu þau þegar þau höfðu lokið við að leysa verkefni í útikennslu í myndmennt og heimilisfræði. Var ferðin samvinnuverkefni milli myndmennta- og heimilisfræðikennaranna þeirra Ingu Harðardóttur og Sóleyjar Jónsdóttur.…Lesa meira

true

Verslun rýkur upp í þriðju bylgju Covid

Líkt og í fyrstu bylgju farsóttarinnar jókst innlend verslun töluvert þegar veiran lét á sér kræla á ný. Á sama tíma og verslun eykst minnkar bæði neysla á þjónustu og neysla erlendis. Samkvæmt Rannsóknasetri verslunarinnar halda Íslendingar uppteknum hætti í verslun á tímum kórónuveirufaraldursins og jókst verslun um 26,3% milli ára í septembermánuði. Velta í…Lesa meira

true

Hvalasporðaspjaldskrá Hafró uppfærð

Hafrannsóknastofnun greinir frá því að spjaldskrá yfir sporða hnúfubaka hafi verið uppfærð og jafnframt gerð aðgengileg almenningi á vef stofnunarinnar til þess að miðla upplýsingum um hnúfubaka hér á landi og víðar. Hnúfubökum er skipt í sjö hópa eftir yfirborði sporðblöðkunnar en mynstur á neðra borði er notað til þess að bera kennsl á einstaka…Lesa meira

true

Hefja vefverslun með Steðja bjór

Brugghús Steðja í Borgarfirði hefur nú opnað vefverslun með bjór. Almenningur sem náð hefur tilskyldum áfengiskaupaaldri getur nú pantað í vefverslun Steðja brugghúss á slóðinni stedji.com og fengið vöruna senda heim að dyrum. „Við tókum þá ákvörðun að láta reyna á EES samninginn og það jafnfræði sem honum er gert að tryggja milli þegna þessa…Lesa meira

true

Björguðu kind úr sjálfheldu í Akrafjalli

Þau eru ýmis verkefnin sem félagar í Björgunarfélagi Akraness sinna. Í gær fengu þeir það verkefni að bjarga kind sem hafði ratað í sjálfheldu í klettum Akrafjalls, ofan við bæinn Kjalardal. Hafði kindin verið þar í nokkra daga. Ásgeir Kristinsson, félagi í Björgunarfélaginu, segir í pistli á facebook síðu sinni að hann tekið sig til…Lesa meira

true

Ólafur kaupir Apótek Ólafsvíkur

Um liðna helgi var skrifað undir kaupsamning að Apóteki Ólafsvíkur, sem hjónin Óli Sverrir Sigurjónsson lyfsali og Sigríður Þórarinsdóttir hafa átt og rekið undanfarin 34 ár. Kaupandi er Ólafur Adolfsson, eigandi Apóteks Vesturlands, og er í kaupsamningi gert ráð fyrir að hann taki við rekstrinum um næstu áramót. „Afmælisdagurinn minn hefur jafnan verið mér til…Lesa meira

true

Viðurkenningar veittar í yngri flokkum ÍA

Lokahóf yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA var haldið með óhefðbundnu sniði þetta árið. Þeim iðkendum sem hlutu viðurkenningu var boðið að koma í hátíðarsal ÍA og taka við þeim, en að öðrum kosti voru engin hátíðarhöld eins og venja hefur verið. Leikmenn ársins í 5. flokki karla eru þeir Birkir Samúelsson, Bjarki Berg Reynisson og Hlynur…Lesa meira

true

42 innanlandssmit

Alls greindust 42 með kórónaveiruna hér innanlands í gær, sunnudaginn 18. október. Af þeim voru 31 í sóttkví við greiningu.  Í dag eru 27 á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. 22 smit greindust á landamærunum og er beðið eftir niðurstöðum mótefnamælingar í 19 tilvikum. Þrjú virk smit greindust í seinni landamæraskimun. Nú…Lesa meira