Fréttir

true

Björguðu kind úr sjálfheldu í Akrafjalli

Þau eru ýmis verkefnin sem félagar í Björgunarfélagi Akraness sinna. Í gær fengu þeir það verkefni að bjarga kind sem hafði ratað í sjálfheldu í klettum Akrafjalls, ofan við bæinn Kjalardal. Hafði kindin verið þar í nokkra daga. Ásgeir Kristinsson, félagi í Björgunarfélaginu, segir í pistli á facebook síðu sinni að hann tekið sig til…Lesa meira

true

Ólafur kaupir Apótek Ólafsvíkur

Um liðna helgi var skrifað undir kaupsamning að Apóteki Ólafsvíkur, sem hjónin Óli Sverrir Sigurjónsson lyfsali og Sigríður Þórarinsdóttir hafa átt og rekið undanfarin 34 ár. Kaupandi er Ólafur Adolfsson, eigandi Apóteks Vesturlands, og er í kaupsamningi gert ráð fyrir að hann taki við rekstrinum um næstu áramót. „Afmælisdagurinn minn hefur jafnan verið mér til…Lesa meira

true

Viðurkenningar veittar í yngri flokkum ÍA

Lokahóf yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA var haldið með óhefðbundnu sniði þetta árið. Þeim iðkendum sem hlutu viðurkenningu var boðið að koma í hátíðarsal ÍA og taka við þeim, en að öðrum kosti voru engin hátíðarhöld eins og venja hefur verið. Leikmenn ársins í 5. flokki karla eru þeir Birkir Samúelsson, Bjarki Berg Reynisson og Hlynur…Lesa meira

true

42 innanlandssmit

Alls greindust 42 með kórónaveiruna hér innanlands í gær, sunnudaginn 18. október. Af þeim voru 31 í sóttkví við greiningu.  Í dag eru 27 á sjúkrahúsi með Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. 22 smit greindust á landamærunum og er beðið eftir niðurstöðum mótefnamælingar í 19 tilvikum. Þrjú virk smit greindust í seinni landamæraskimun. Nú…Lesa meira

true

Lækka verð í Krambúðum með innkaupasamstarfi við Dani

„Það er fagnaðarefni að geta lækkað vöruverð á tímum sem þessum, þegar gengi krónurnar hefur lækkað um 11% frá því í júlí með tilheyrandi verðhækkunum á innfluttum vörum,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa í fréttatilkynningu. „Við erum í samstarfi við stærstu verslanakeðju Danmerkur og með sameiginlegum innkaupakrafti okkar og þeirra og með auknu…Lesa meira

true

Faxabraut lokað

Akraneskaupstaður tilkynnir á vefsíðu sinni að vegna framkvæmda á Faxabrautinni muni henni verða lokað á hádegi í dag, 19. október, fyrir allri umferð og verður henni nú beint um bráðabirgðaveg sem lagður hefur verið nokkru ofar í Sementsreitinn. Í tilkynningunni segir: „Þegar Faxabraut er lokað fyrir umferð á það einnig við um umferð gangandi- og…Lesa meira

true

Kona lést í eldsvoða í Borgarfirði

Klukkan 17:37 í gær barst tilkynning um eld í íbúðarhúsi á bæ í Hálsasveit í Borgarfirði. Við komu slökkviliðs og lögreglu á vettvang var íbúðarhúsið alelda. Ein kona var í húsinu þegar eldurinn kom upp og lést hún í brunanum. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að ekki er vitað um eldsupptök og…Lesa meira

true

Engar loðnuveiðar ráðgerðar á næstu vertíð

Hafrannsóknastofnun gaf á föstudaginn út skýrslu um ástand nytjastofna sjávar og ráðgjöf 2020. Samkvæmt henni leggur stofnunin til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2020/2021. Það yrði því þriðja vertíðin í röð þar sem loðnuveiðar falla niður við Íslandsstrendur. Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti á Vesturlandi í september

Þjóðskrá Íslands heldur utan um fasteignaviðskipti á landsvísu eftir tímabilum sem jafnframt er hægt að flokka eftir landshlutum. Í september síðastliðnum voru talsverð viðskipti með fasteignir á Vesturlandi þegar 71 fasteign skipti um eiganda. Heildarvelta í þessum viðskiptum var 2.634 milljónir króna sem gerir meðalsöluverð 37,1 milljón kr. Þar af voru seldar 27 eignir í…Lesa meira

true

Kynntu aðgerðir til stuðnings menningarstarfsemi

Forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra kynntu á föstudaginn, ásamt fulltrúum Bandalags háskólamanna og Bandalags íslenskra listamanna, tíu stuðningsaðgerðir stjórnvalda fyrir listir og menningu á tímum Covid-19. Aðgerðirnar miða að því að bæta stöðu starfandi listamanna og menningartengdra fyrirtækja. Liður í þeim eru tekjufallsstyrkir sem einyrkjar og smærri rekstraraðilar munu geta sótt um en ráðgert er…Lesa meira