
Fjölmenni var viðstatt hátíðarguðsþjónustu á Akranesi í gær. Þá var fagnað 120 ára vígsluafmælis kirkjunnar og 30 ára afmælis safnaðarheimilisins Vinaminnis. Séra Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands prédikaði en auk hennar þjónuðu við athöfnina prestar safnaðarins þeir sr. Eðvarð Ingólfsson og sr. Þráinn Haraldsson auk sr. Þorbjarnar Hlyns Árnasonar prófasts á Borg. Sóknarnefndarfólk las ritningarorð…Lesa meira








