
Skólahópur frá Leikskólanum Hnoðrabóli í Reykholtsdal kom í heimsókn í Kleppjárnreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar í síðustu viku. Heimsóknin hófst á skynjunarverkefni sem fram fór úti á Læknistúni. Þar var unnið með skynjunarlíffærin sem sjá um sjón, heyrn, lykt, snertingu og bragð. Eftir það var hádegismatur og síðan samverustund þar sem nemendur í 5. bekk lásu fyrir…Lesa meira








