
Hrútar verða þreifaðir og þuklaðir í Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum sunnudaginn 21. ágúst. Þá fer fram hið árlega Íslandsmeistaramót í hrútadómum. Jafnan er þátttaka góð í mótinu, bæði í flokki reyndra hrútadómara og eins í flokki óvanra hrútaþuklara. Vestlendingar úr nærliggjandi sveitarfélögum hafa oft fjölmennt á mótið og voru einráðir á verðlaunapalli…Lesa meira








