
Nýnemadagar Háskólans á Bifröst eru framundan og hefjast á morgun, fimmtudaginn 18. ágúst. Þá taka kennarar og starfsmenn á móti nýnemum og kynna námið og aðstöðuna á Bifröst. Nemendafélag háskólans sér einnig um dagskrá fyrir nýnema. „Háskólinn á Bifröst býður alla nýnema hjartanlega velkomna í hópinn,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Dagskrá nýnemadaga má nálgast hér.Lesa meira








