Fréttir

true

Þúsund og fimm óku of hratt

Alls voru 1005 ökumenn myndaðir fyrir hraðakstur af hraðamyndavélum lögreglunnar víðs vegar um landið í vikunni sem leið, en þar af voru 132 myndaðir af hraðamyndavélunum sem eru við Fiskilæk sunnan við Hafnarfjall og við Hagamel sunnan Laxár í Hvalfjarðarsveit. Þá mældu lögreglumenn í umferðareftirliti á Vesturlandi 32 ökumenn fyrir of hraðan akstur víðs vegar…Lesa meira

true

Nýnemadagar hefjast á Bifröst á morgun

Nýnemadagar Háskólans á Bifröst eru framundan og hefjast á morgun, fimmtudaginn 18. ágúst. Þá taka kennarar og starfsmenn á móti nýnemum og kynna námið og aðstöðuna á Bifröst. Nemendafélag háskólans sér einnig um dagskrá fyrir nýnema. „Háskólinn á Bifröst býður alla nýnema hjartanlega velkomna í hópinn,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Dagskrá nýnemadaga má nálgast hér.Lesa meira

true

Kemst ÍA í baráttuna um að halda sæti sínu í deildinni?

Skagakonur eru í býsna erfiðri stöðu í Pepsi deild kvenna þegar aðeins sjö umferðir eru eftir. Liðið situr á botni deildarinnar með fimm stig. Skagakonur mæta liði Selfoss klukkan 18:30 í kvöld á Selfossvelli. Leikurinn er nokkuð mikilvægur fyrir Skagakonur en með sigri geta þær komist í baráttuna um að halda sæti sínu í deildinni.…Lesa meira

true

Guðjón Brjánsson vill leiða lista Samfylkingarinnar

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Samfylkingarinnar, jafnaðarmannaflokks Íslands, í Norðvesturkjördæmi sem fram fer 8. – 10. september næstkomandi og sækjast eftir 1. sæti á framboðslista flokksins,“ segir Guðjóns Brjánsson forstjóri HVE í tilkynningu. „Ég hef búið á landsbyggðinni mestan hluta ævinnar að undanskildum sjö árum í Kópavogi, lengst af á…Lesa meira

true

Kafteinn Pírata á Vestfjörðum vill að listi flokksins verði ógiltur

Síðastliðinn mánudag voru niðurstöður prófkjörs Pírata í Norðvesturkjördæmi kynntar. Niðurstaðan varð sú að Þórður Guðsteinn Pétursson vermir efsta sæti listans, Gunnar Jökull Karlsson varð í öðru sæti og Eiríkur Þór Theódórsson í því þriðja. Töluverð umræða hefur skapast á vef Pírata um málið. Meðal þeirra sem hefur tjáð sig er Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir, kafteinn Pírata…Lesa meira

true

Hulda Birna Baldursdóttir er nýr framkvæmdastjóri KFÍA

Hulda Birna Baldursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Tekur hún við starfinu þriðjudaginn 1. nóvember næstkomandi af fráfarandi framkvæmdastjóra Haraldi Ingólfssyni. Þangað til mun hún taka þátt í einstökum verkefnum félagsins og kynna sér starfið. „Það er mjög spennandi að ganga til liðs við KFÍA á þessum tímapunkti. Ég þekki vel til félagsins, lék…Lesa meira

true

Hjördís gefur kost á sér í forvali VG

Hjördís Pálsdóttir í Stykkishólmi, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 5. – 7. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. „Ég er fædd árið 1986 í Stykkishólmi og ólst þar upp en á ættir mínar að rekja meðal annars í Staðarsveit, Reykhólasveit og á Blönduós. Ég lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla…Lesa meira

true

Skallagrímur fær efnilegan leikmann

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Eyjólf Ásberg Halldórsson um að leika með liðinu í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á komandi vetri. Eyjólfur er fæddur árið 1998 og er því 18 ára gamall. Hann er uppalinn hjá KR en lék á síðasta tímabili með liði ÍR sem varð Íslandsmeistari í drengjaflokki. Var hann valinn besti…Lesa meira

true

Útgáfutónleikar Ingu Maríu í kvöld

Söngkonan Inga María Hjartardóttir heldur útgáfutónleika á Akranesi í tilefni af útgáfu nýs efnis. Einnig eru tónleikarnir hennar leið til að kveðja að sinni, en hún heldur bráðlega aftur til Boston í Bandaríkjunum þar sem hún stundar nám við Berklee Collage of Music. Tónleikar Ingu Maríu fara fram á Gamla kaupfélaginu í kvöld, miðvikudaginn 17.…Lesa meira

true

Skólablað fylgir Skessuhorni í dag

Með Skessuhorni sem kom út í dag fylgir 16 síðna sérblað sem tileinkað er upphafi skólaársins. Rætt er við forsvarsmenn grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla á Vesturlandi. Samhliða því að grunnskólar hefjast bætast mörg hundruð ungir einstaklingar í umferðina. Ökumenn eru sérstaklega hvattir til að taka tillit til þess og fara varlega. Skessuhorn óskar skólafólki; nemendum…Lesa meira