Fréttir

true

Metnaðarfull áform um umbreytingu Grundaskóla

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, greinir á Facebook síðu sinni frá kynningarfundi í Teams um endurbætur á skólahúsnæði og framtíðar uppbyggingu í Grundaskóla en fundurinn var síðastliðið mánudagskvöld. Sævar segir á síðu sinni að glæsileg frumhönnun sé tilbúin og hvetur hann alla til að kynna sér þær hugmyndir sem er ætlað að skila stórglæsilegum…Lesa meira

true

Gítardúett á Landsnámssetri

Gunnar Ringsted og Reynir Hauksson leiða saman hesta sína á gítardúett tónleikum á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi föstudaginn 10. september kl. 20. Þeir munu renna í gegnum ólíkan stíl tónlistar, á borð við jazz, blús, flamenco, rokk og íslensk þjóðlög með lögum frá Django Reinhardt, Mezzoforte, The Beatles og mörgum fleirum. Gunnar og Reynir lofa…Lesa meira

true

Íþróttamót Dreyra fór fram á Æðarodda

Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Dreyra var haldið á Æðarodda helgina 28. og 29. ágúst. Skráningar voru rúmlega 70 og þátttaka í mótinu mjög góð. Fyrir þátttakendur sem komu langt að var hesthúsapláss og hey í boði. Í tilkynningu frá mótanefnd Dreyra vill félagið þakka Íslandsbanka, Landsbankanum og Kallabakarí fyrir stuðninginn og öllum keppendum og sjálfboðaliðum fyrir…Lesa meira

true

Meistarakeppni Keilusambandsins verður á Akranesi í kvöld

Í kvöld fer fram Meistarakeppni Keilusambands Íslands og að þessu sinni verður leikið í Keilusalnum á Akranesi. Sem fyrr eru það Íslandsmeistarar liða og Bikarmeistarar liða sem mætast í þessari fyrstu keppni komandi tímabils. Fyrst fer fram kvennaleikurinn en þar eigast við Íslandsmeistarar KFR-Valkyrjur við lið ÍR-Buff en KFR-Valkyrjur urðu bæði Íslands- og Bikarmeistarar 2021…Lesa meira

true

Dregur úr kynbundnum launamun

Í rannsókn sem Hagstofa Íslands framkvæmdi fyrir forsætisráðuneytið kemur fram að launamunur karla og kvenna hér á landi hefur dregist saman frá 2008 til 2020 og á það jafnt við um atvinnutekjur, óleiðréttan og leiðréttan launamun. Kynbundin skipting vinnumarkaðar í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann launamun sem er til staðar en áhrif…Lesa meira

true

Fjölmiðlanefnd birtir úthlutun um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla

Úthlutunarnefnd, sem mennta- og menningarmálaráðherra skipaði um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla árið 2021, hefur lokið störfum í ár. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að alls hafi 23 umsóknir borist um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals hafi verið sótt um rekstrarstuðning að…Lesa meira

true

Kjördæmafundur Norðvesturkjördæmis á Rás 2 síðdegis

Síðdegis í dag fer fram kjördæmafundur í Norðvesturkjördæmi á Rás 2 Ríkisútvarpsins. Hefst fundurinn kl. 17:30. Þar munu forystumenn þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í kjördæminu verða spurðir spjörunum úr um áherslur flokkanna í komandi alþingiskosningum. Fundurinn er haldinn í Borgarnesi og umsjónarmenn eru þeir Arnar Páll Hauksson og Anna Kristín Jónsdóttir.Lesa meira

true

Dýpkunartækin farin frá Ólafsvík

Á miðvikudaginn í síðustu viku kom dráttarbáturinn Grettir Sterki til Ólafsvíkur að sækja dýpkunarprammann Reyni sem þá hafði lokið framkvæmdum í höfninni. Mikill hamagangur var á meðan verið var að koma dráttartaug á milli en þó nokkur vindur var að sunnan þegar tauginni var komið yfir og kom vindurinn þvert á Gretti. Allt hafðist þetta…Lesa meira

true

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninga laugardaginn 25. september hófst föstudaginn 13. ágúst síðastliðinn. Hægt verður að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum og útibúum sýslumanna um allt land fram að kjördegi. Öllum á kjörskrá er heimilt að kjósa utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu. Hjá sýslumanninum á Vesturlandi má greiða atkvæði alla virka…Lesa meira

true

Leðurblaka fannst í Kjós

Á Facebook síðunni „Skordýr og nytjadýr á Íslandi“ ræðir fólk um þau skordýr sem á vegi þeirra verða hér á landi. Flestir setja inn myndir af skordýri til að fá nánari upplýsingar um hvað skordýrið heitir og hvaða tilgangi það þjónar og einnig hvort það sé skaðlegt eða meinlaust. Í gærkvöldi birtust myndir á síðunni…Lesa meira