Fréttir

true

Að afloknu kassabílarallýi

Stærsta kassabílarallý ársins fór fram á hafnarsvæðinu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Skemmtileg stemning skapaðist þegar fjölmargir keppendur og kassabílasmiðir komu saman og háðu drengilega keppni. Sjá nánar myndasyrpu í Skessuhorni vikunnar sem kom út í dag.Lesa meira

true

Rætt við oddvita Sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar í haust

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins er nýr oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi. Þórdís Kolbrún er fædd og uppalin Skagakona og var ung farin að hafa afskipti af stjórnmálum og fljótt komin í ábyrgðarhlutverk innan Sjálfstæðisflokksins. „Ætli aðdragandinn hafi ekki verið ómældur áhugi minn á pólitík, fólki og samfélaginu,“ segir Þórdís…Lesa meira

true

Fækkar í einangrun en fjölgar í sóttkví

Samkvæmt nýjum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi eru nú 25 í einangrun í landshlutanum með Covid-19 og 42 í sóttkví. Af þeim sem eru í einangrun er 21 á Akranesi, tveir í Stykkishólmi, einn í Ólafsvík og einn í Borgarnesi. Í sóttkví eru nú alls 42 í landshlutanum; 27 á Akranesi, 14 í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Eyjólfur segir góðar samgöngur vera forsendu byggðar í landinu

Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar. Eyjólfur er fæddur í Vestmannaeyjum, þriðji í röð fjögurra systkina. Foreldrar hans eru Guðjón Ármann Eyjólfsson, sjóliðsforingi og skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík til margra ára, og Anika Jóna Ragnarsdóttir, húsmóðir og sjúkraliði. Fjölskyldan flutti frá Eyjum í eldgosinu, þegar Eyjólfur var á…Lesa meira

true

UltraForm stöð opnuð á Akranesi um miðjan mánuðinn

UltraForm líkamsræktarstöð verður opnuð á Akranesi miðvikudaginn 15. september næstkomandi. „Við erum fyrir með eina stöð í Grafarholti þar sem hátt í hundrað manns æfa,“ segir Sigurjón Erni Sturluson, eigandi UltraForm í samtali við Skessuhorn. UltraForm er hóptímastöð þar sem æfingarnar eru settar upp með þeim hætti að allir geti aðlagað þær að sinni getu.…Lesa meira

true

Rafmagnslaus í einn dag í næstu viku

Veitur hafa tilkynnt um rafmagnsleysi einn dag í næstu viku við nokkrar götur á Akranesi. Vegna viðgerðar verður rafmagn tekið af Garðabraut, Höfðabraut, Skarðsbraut 2 og 4 og Jaðarsbraut 27-41 miðvikudaginn 8. september frá klukkan 09:00 til klukkan 19:00. Nánar má lesa um þetta á veitur.is þar sem fólki er bent á að slökkva á…Lesa meira

true

Gat fannst á sjókví Arnarlax í Arnarfirði

Matvælastofnun barst síðastliðinn mánudag tilkynning frá Arnarlaxi um gat á nótarpoka einnar sjókvíar fyrirtækisins við Haganes í Arnarfirði. Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð á því lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á tveggja metra dýpi og reyndist vera um það bil 2×2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000 laxar…Lesa meira

true

Langreyður sem barst til landsins framan á stefni flutningaskips

Nú hefur verið staðfest að hvalurinn sem rak dauður á Kjaransstaðafjöru í Hvalfarðarsveit síðastliðinn laugardag var langreyður. Hann er tæplega 14 metra langur og barst til landsins framan á stefni flutningaskipsins Nordfjord sem kom til Hafnarfjarðarhafnar 24. ágúst. Straumar og vindar færðu hræið yfir flóann þar sem því skolaði á land fimm dögum síðar.Lesa meira

true

Halda til veiða í dag

Nýtt kvótaár hefst í dag. Strákarnir á Sveinbirni Jakobssyni SH voru í óða önn að taka snurvoðina um borð ásamt körum og ís þegar ljósmyndari hitti á þá fyrr í vikunni í Ólafsvík. Var ekki annað að heyra en þá hlakkaði til að hefja veiðar á nýju kvótaári og ekki skemmir verðið fyrir, en verðið…Lesa meira

true

Liðskiptasetur sett á fót á Akranesi

Liðskiptaaðgerðum verður fjölgað umtalsvert hér á landi með opnun nýrrar skurðstofu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Á nýju liðskiptasetri verður eingöngu sinnt liðskiptaaðgerðum og gert ráð fyrir að það taki til starfa í mars á næsta ári. Stofnunin verður þá með getu til að framkvæma um 430 aðgerðir á ári sem er rúmlega tvöföldun á…Lesa meira