Fréttir

true

Píratar birta lista sinn í Norðvesturkjördæmi

Eftirfarandi er framboðslisti Pírata í NV kjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september næstkomandi: Nr. 1 Magnús Davíð Norðdahl, Reykjavík, mannréttindalögmaður Nr. 2. Gunnar Ingiberg Guðmundsson, Snæfellsnesi, strandveiðisjómaður Nr. 3. Pétur Óli Þorvaldsson, Suðureyri, verslunarmaður Nr. 4. Sigríður Elsa Álfh.d, Ísafirði, sjúkraliðanemi Nr. 5. Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, Borgarnesi, öryrki Nr. 6. Ólína Björk Hjartardóttir, Sauðárkróki, atvinnurekandi Nr.…Lesa meira

true

Tekið verður við allt að 120 afgönskum flóttamönnum

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur flóttamannanefndar vegna þess ófremdarástands sem hefur skapast í Afganistan í kjölfar valdatöku talibana. Með tillögum flóttamannanefndar verður stutt við þær fjölskyldur sem eru hér á landi og eiga rétt á sameiningu við fjölskyldumeðlimi í Afganistan. Þá verður lögð áhersla á að aðstoða einstaklinga sem eru í…Lesa meira

true

Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn birtir framboðslista sinn

Framboðslistar Frjálslynda lýðræðisflokksins hafa nú verið birtir í öllum landsbyggðarkjördæmum, en listar fyrir Reykjavíkurkjördæmin verða birtir í næstu viku. Flokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O. Listi flokksins í Norðvesturkjördæmi er þannig: Nr. 1 Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir, verslunarmaður Nr. 2 Jóhann Bragason, rafvirki Nr. 3 Hafþór Magnússon, sjómaður Nr. 4 Jón Sigurðsson, smiður Nr. 5…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við þrjá leikmenn

Penninn var á lofti í í herbúðum Skallagríms í Borgarnesi í liðinni viku. Samningar voru endurnýjaðir við tvo leikmenn, þá Davíð Guðmundsson og Benedikt Lárusson, sem ætla að taka slaginn með meistaraflokki karla á komandi vetri. Þar að auki var Arnar Smári Bjarnason fenginn aftur í liðið fyrir komandi vetur en hann hélt í víking…Lesa meira

true

Farsæl lending í mönnun lækna í Borgarnesi

Vel hefur gengið á liðnum dögum að ráða í lausar stöður heilsugæslulækna í Borgarnesi. Um tíma í sumar leit út fyrir að læknislaust yrði eftir 1. september, en nú horfir dæmið öðruvísi við. Þessu fagnar forsvarsfólk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, sem blaðamaður Skessuhorns ræddi við í gær. „Þetta leit vissulega illa út á tímabili í sumar eftir…Lesa meira

true

Hraðpróf verða heimil utan rannsóknastofu

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð nr. 415/2004 sem fjallar m.a. um hraðpróf. Breytingin er unnin í samráði við sóttvarnalækni. Í reglugerðinni segir að heilbrigðisstarfsmanni sem hlotið hefur þjálfun, eða sérþjálfaður starfsmaður sem fengið hefur sérstaka þjálfun frá heilbrigðisstarfsmanni, er heimilt að framkvæma greininu á SARS-CoV-2 veirunni með CE-vottuðu hraðprófi. Þannig er ekki lengur skylda…Lesa meira

true

Búið að steypa stóran hluta af þekjunni

Framkvæmdir við Grundarfjarðarhöfn eru í góðum gír og vel gengur að steypa þekjuna á nýju bryggjuna. Búið er að steypa um 3.000 fermetra en alls er þekjan um 4.400 fermetrar og því langt komin. Skemmtiferðaskipin eru farin að leggjast að nýja hafnarkantinum, eins og fram hefur komið í Skessuhorni, og nýta þau bætta þjónustu hafnarinnar.Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir sigraði í 2. deild kvenna +50

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna í +50 ára flokki fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 19. – 21. ágúst. Alls tóku átta klúbbar þátt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og leikið var í tveimur riðlum og komust tvö efstu liðin úr hvorum riðli í undanúrslit. Golfklúbburinn Leynir frá Akranesi og Golfklúbbur Suðurnesja léku…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi merktum Ali, Bónus eða FK frá Matfugli vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur í öryggisskyni ákveðið að innkalla lotuna og sent frá sér fréttatilkynningu. Matvælastofnun fékk upplýsingar um innköllunina frá fyrirtækinu og lét heilbrigðiseftirlitið vita. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vöruheiti: Ali, Bónus, FK Framleiðandi:…Lesa meira

true

Reynir tapaði stórt í lokaleiknum

Reynir frá Hellissandi lék síðasta leik sinn í sumar í C-riðli 4. deildar karla í gær á Ólafsvíkurvelli gegn liði Álftaness sem endaði í toppsæti riðilsins og er á leið í úrslitakeppnina um að komast upp í 3. deild. Leikurinn byrjaði ansi fjörlega því strax á þriðju mínútu komst Álftanes yfir með marki Andra Janussonar.…Lesa meira