Fréttir

true

Nýr upplýsingafulltrúi Landsbjargar

Þorsteinn G. Gunnarsson tók nýverið við starfi upplýsinga- og kynningarfulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Auk samskipta við fjölmiðla mun Þorsteinn vinna að margvíslegum verkefnum fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg sem lúta að málefnum félagsins og útgáfumálum. Þorsteinn hefur víðtæka reynslu af almannatengslum og kynningarmálum eftir að hafa starfað sem ráðgjafi í almannatengslum í 18 ár, lengst af hjá KOM…Lesa meira

true

Vorið í fyrra hefur verið erfitt fyrir laxaseiðin

„Við vorum að veiða á Munaðarnessvæðinu í Norðurá en fengum ekki mikið, urðum aðeins varir, en ekki meira en það,“ sagði Eggert Jóhannesson sem var á veiðislóðum í Norðurá í Borgarfirði í vikunni sem leið. „Veiðimenn sem voru að veiða á móti okkur í Straumunum fengu nokkra laxa meðan við stoppuðum þarna við, en þeir…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að nýrri Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi

Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra tók á föstudaginn fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Við athöfnina sagði ráðherra að með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar yrðu innviðir þjóðgarðsins Snæfellsjökuls styrktir, þetta yrði lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og að með henni yrði þjóðgarðurinn betur í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum sem heimsækja svæðið allt árið um…Lesa meira

true

Sækja slasaðan göngumann við Glym

Þrjár björgunarsveitir Landsbjargar af sunnanverðu Vesturlandi; Björgunarfélag Akraness, Björgunarsveitin Brák og Björgunarsveitin Ok, vinna nú saman að björgun slasaðs ferðamanns við Botnsá í Hvalfirði. Hann mun vera slasaður á fæti. Útkall barst laust eftir klukkan 14 í dag og var hinn slasaði staddur ofarlega við ána, uppundir fossinum Glym. Að sögn fulltrúa í svæðisstjórn gengur…Lesa meira

true

Spáð er snörpum hviðum við fjöll víða á Vesturlandi

Eftir miðjan daginn hvessir á norðanverðu Snæfellsnesi, einkum vestan Grundarfjarðar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hviður geti orðið allt að 25-30 m/s fram eftir kvöldi.  Einnig er hætt við hviðum við Hafnarfjall um tíma í kvöld. „Þá er rétt að vara við mjög hvössum vindi á Kaldadal þvert á veg með grjót- og sandfoki…Lesa meira

true

Konan fannst heil á húfi

Víðtæk leit hófst í gærkvöldi að ungri konu af höfuðborgarsvæðinu sem saknað hafði verið frá því á föstudag. Meðal annarra tóku björgunarsveitir af sunnanverðu Vesturlandi þátt í leitinni. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar fann síðan konuna heila á húfi í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til allra sem þátt tóku í leitinni.Lesa meira

true

Stund milli stríða hjá dýralækninum

Gunnar Guðnason sendi ritstjórn Skessuhorn línu þar sem hann biður fyrir kveðju til Gunnars Gauta Gunnarssonar dýralæknis í Borgarnesi og bestu þakkir fyrir skemmtilega gönguferð á fjallið Baulu í einmunablíðu nýverið. „Þegar á tindinn kom dró nafni minn upp Skessuhornið og las til að öðlast hinn sanna innri frið,“ skrifar Gunnar Guðnason sem segir dýralækninn…Lesa meira

true

Afar óvarlega farið með eld í þurrum skóginum

„Ef fólk hagar sér svona, er ekki spurning um hvort, heldur hvenær Skorradalurinn brennur til kaldra kola,“ segir maður sem á rætur í Skorradal í Borgarfirði. Hann áframsendi jafnframt mynd til ritstjórnar sem sett var á Facebook síðu eiganda sumarhúss í dalnum fyrr í dag. Myndin er líklega tekin í landi Stálpastaða en þar hafa…Lesa meira

true

Ein kartafla dugar í matinn

„Ég hef aldrei tekið upp svona stóra kartöflu áður. Reyndar á ég eftir að taka kartöflugrasið upp svo ég veit ekki hvað á eftir að leynast undir því þegar upp verður staðið. Allavega þarf ég ekki að taka meira upp í dag. Þessi dugar í matinn í kvöld,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í…Lesa meira

true

Ólína býður sig fram í forystusæti Samfylkingarinnar

„Fólkið fyrst – eitt samfélag fyrir alla,“ eru baráttuorð Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur alþingismanns Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sem nú hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir þingkosningarnar 29. október næstkomandi. „Ég hef afráðið að gefa áfram kost á mér til þess að leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi í næstu kosningum.…Lesa meira