Fréttir

true

Vorið í fyrra hefur verið erfitt fyrir laxaseiðin

„Við vorum að veiða á Munaðarnessvæðinu í Norðurá en fengum ekki mikið, urðum aðeins varir, en ekki meira en það,“ sagði Eggert Jóhannesson sem var á veiðislóðum í Norðurá í Borgarfirði í vikunni sem leið. „Veiðimenn sem voru að veiða á móti okkur í Straumunum fengu nokkra laxa meðan við stoppuðum þarna við, en þeir…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að nýrri Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi

Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra tók á föstudaginn fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Við athöfnina sagði ráðherra að með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar yrðu innviðir þjóðgarðsins Snæfellsjökuls styrktir, þetta yrði lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og að með henni yrði þjóðgarðurinn betur í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum sem heimsækja svæðið allt árið um…Lesa meira

true

Sækja slasaðan göngumann við Glym

Þrjár björgunarsveitir Landsbjargar af sunnanverðu Vesturlandi; Björgunarfélag Akraness, Björgunarsveitin Brák og Björgunarsveitin Ok, vinna nú saman að björgun slasaðs ferðamanns við Botnsá í Hvalfirði. Hann mun vera slasaður á fæti. Útkall barst laust eftir klukkan 14 í dag og var hinn slasaði staddur ofarlega við ána, uppundir fossinum Glym. Að sögn fulltrúa í svæðisstjórn gengur…Lesa meira

true

Spáð er snörpum hviðum við fjöll víða á Vesturlandi

Eftir miðjan daginn hvessir á norðanverðu Snæfellsnesi, einkum vestan Grundarfjarðar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hviður geti orðið allt að 25-30 m/s fram eftir kvöldi.  Einnig er hætt við hviðum við Hafnarfjall um tíma í kvöld. „Þá er rétt að vara við mjög hvössum vindi á Kaldadal þvert á veg með grjót- og sandfoki…Lesa meira

true

Konan fannst heil á húfi

Víðtæk leit hófst í gærkvöldi að ungri konu af höfuðborgarsvæðinu sem saknað hafði verið frá því á föstudag. Meðal annarra tóku björgunarsveitir af sunnanverðu Vesturlandi þátt í leitinni. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar fann síðan konuna heila á húfi í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til allra sem þátt tóku í leitinni.Lesa meira

true

Stund milli stríða hjá dýralækninum

Gunnar Guðnason sendi ritstjórn Skessuhorn línu þar sem hann biður fyrir kveðju til Gunnars Gauta Gunnarssonar dýralæknis í Borgarnesi og bestu þakkir fyrir skemmtilega gönguferð á fjallið Baulu í einmunablíðu nýverið. „Þegar á tindinn kom dró nafni minn upp Skessuhornið og las til að öðlast hinn sanna innri frið,“ skrifar Gunnar Guðnason sem segir dýralækninn…Lesa meira

true

Afar óvarlega farið með eld í þurrum skóginum

„Ef fólk hagar sér svona, er ekki spurning um hvort, heldur hvenær Skorradalurinn brennur til kaldra kola,“ segir maður sem á rætur í Skorradal í Borgarfirði. Hann áframsendi jafnframt mynd til ritstjórnar sem sett var á Facebook síðu eiganda sumarhúss í dalnum fyrr í dag. Myndin er líklega tekin í landi Stálpastaða en þar hafa…Lesa meira

true

Ein kartafla dugar í matinn

„Ég hef aldrei tekið upp svona stóra kartöflu áður. Reyndar á ég eftir að taka kartöflugrasið upp svo ég veit ekki hvað á eftir að leynast undir því þegar upp verður staðið. Allavega þarf ég ekki að taka meira upp í dag. Þessi dugar í matinn í kvöld,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í…Lesa meira

true

Ólína býður sig fram í forystusæti Samfylkingarinnar

„Fólkið fyrst – eitt samfélag fyrir alla,“ eru baráttuorð Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur alþingismanns Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sem nú hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir þingkosningarnar 29. október næstkomandi. „Ég hef afráðið að gefa áfram kost á mér til þess að leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi í næstu kosningum.…Lesa meira

true

Fjórir sækjast eftir að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi

Ellefu sendu kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi yfirlýsingu um framboð til forvals flokksins fyrir komandi alþingiskosningar; fjórar konur og sjö karlar. Flokkurinn á nú einn þingmann í kjördæminu, Lilju Rafney Magnúsdóttur á Suðureyri. Lilja Rafney er í hópi þeirra sem gefa kost á sér til forystu, en auk hennar sækjast eftir fyrsta sætinu þeir…Lesa meira