
Á fundi í hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps síðastliðinn miðvikudag var tekið fyrir erindi frá Snæfellsbæ dagsett 20. júlí síðastliðinn þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarstjórnar til þess að hafnar verði formlegar sameiningarviðræður milli sveitarfélaganna. Hreppsnefnd samþykkti með fjórum atkvæðum að hefja formlegar viðræður við Snæfellsbæ um sameiningu sveitarfélaganna. Gísli Guðmundsson greiddi atkvæði á móti…Lesa meira








