Fréttir

true

Lætur af störfum eftir 42 ár sem leikskólakennari í Borgarnesi

Ásdís Baldvinsdóttir fagnaði 70 ára afmæli sínu í gær, þriðjudaginn 13. júlí, og hefur jafnframt ákveðið að láta af störfum, en hún á að baki 42 ár sem leikskólakennari hjá Borgarbyggð. „Ég er í sumarfríi akkúrat núna, svo formlega læt ég ekki af störfum fyrr en 1. ágúst,“ segir hún létt í lund við eldhúsborðið…Lesa meira

true

Skothríð við sumarbústað með stolnum skotvopnum

Síðastliðið sunnudagskvöld barst lögreglu tilkynning um að verið væri að skjóta af haglabyssu og riffli við sumarbústað í Borgarfirði. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar eins og venja er í slíkum málum. Í kjölfarið voru fjórir handteknir á staðnum. Skotmennirnir héldu því fram að þeir hefðu leyfi húsráðanda fyrir skytteríinu. Þá var einn aðili sem…Lesa meira

true

Óvenjuleg björgunaraðgerð í Skallagrímsgarði

Þau eru margvísleg verkefnin sem Slökkvilið Borgarbyggðar fær í hendurnar. Borgarbyggð segir frá því á vef sínum í dag að á miðnætti laugardaginn 10. júlí, hafi komið beiðni frá Lögreglunni á Vesturlandi um aðstoð við að bjarga dróna niður úr tré í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Í fréttinni segir að fram til þessa hafi verið venja…Lesa meira

true

Enn er beðið eftir skýrslu um ítök stórútgerða

Fyrr í dag sendi Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, forsætisráðherra bréf og krafðist svara vegna óeðlilegra tafa á birtingu skýrslu um eignarhald 20 stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi, síðastliðinn áratug. „29 vikur eru liðnar frá því að Alþingi samþykkti einróma ósk Hönnu Katrínar um að fá þessa skýrslu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Tilgangur skýrslubeiðninnar…Lesa meira

true

Fremstur á meðal jafningja í Elite flokki

Þorsteinn Bárðarson hjólreiðakappi úr Snæfellsbæ gerði sér lítið fyrir og sigraði í Elite flokki Kia Gullhringsins í hjólreiðum um liðna helgi. Elite flokkurinn er lengsta leiðin en þar eru hjólaðir 96 kílómetrar. Þorsteinn hjólaði á tímanum 02:19:57 en næstu menn voru örfáum sekúndum á eftir honum. Þorsteinn hefur verið duglegur að keppa í hjólreiðum undanfarin…Lesa meira

true

Skagamenn í vondum málum

Skagamenn gerðu ekki góða ferð í Breiðholtið í gærkvöldi þegar þeir mættu Reykjavíkur Leikni í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Sævar Atli Magnússon kom heimamönnum yfir á 19. mínútu og þeir hefðu í raun geta skorað nokkur mörk til viðbótar í fyrri hálfleik en staðan 1-0 í hálfleik. Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA, var…Lesa meira

true

Íslenskir fjárhundar koma saman á Árbæjarsafni

Sunnudaginn 18. júlí verður Dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíðlegur í sjötta sinn. Eigendur íslenskra fjárhunda munu að venju koma saman í stærri og smærri hópum og njóta dagsins með ferfættum vinum sínum. Sú hefð hefur skapast að Árbæjarsafn í Reykjavík hefur boðið meðlimum í Deild íslenska fjárhundsins að heimsækja safnið með hunda og setja saman…Lesa meira

true

Stefnir í læknaskort

Í síðustu viku fjallaði fréttastofa Ríkisútvarpsins talsvert um þann læknaskort sem nú er á landsbyggðinni, raunar allsstaðar utan suðvesturhorns landsins. Í þeirri umræðu sagði formaður Læknafélags Íslands að gera þyrfti læknastarfið úti á landi meira aðlaðandi með því að breyta vaktafyrirkomulagi og minnka álag. Í þessari umfjöllun var sérstaklega rætt um alvarlega stöðu sem horft…Lesa meira

true

Ekkert íbúðarhúsnæði til sölu

Athygli vekur að ekki ein íbúð eða einbýlishús var til sölu í Búðardal í gær, ef marka má fasteignasölusíður. Þar hefur lítið verið byggt á liðnum árum, en byrjað var að byggja fimm íbúða raðhús með leiguíbúðum á síðasta ári. Í dreifbýli Dalabyggðar eru hinsvegar nokkrar jarðir og landspildur auglýstar til sölu samkvæmt vef fasteignasala.Lesa meira

true

Reynir H. steinlá fyrir KÁ

Reynir Hellissandi lék gegn toppliði KÁ í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli í gær. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik brustu allar flóðgáttir. Hafnarfjarðarpiltar skoruðu þá alls fimm mörk á 45 mínútum, Aron Hólm Júlíusson skoraði tvö mörk og þeir Daði Snær Ingason, Egill Örn Atlason og Ólafur…Lesa meira