
Athygli vekur að ekki ein íbúð eða einbýlishús var til sölu í Búðardal í gær, ef marka má fasteignasölusíður. Þar hefur lítið verið byggt á liðnum árum, en byrjað var að byggja fimm íbúða raðhús með leiguíbúðum á síðasta ári. Í dreifbýli Dalabyggðar eru hinsvegar nokkrar jarðir og landspildur auglýstar til sölu samkvæmt vef fasteignasala.Lesa meira








