Fréttir

true

Fyrstu tölur úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi lauk nú í kvöld en Haraldur Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sækjast bæði eftir því að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Haraldur er oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi en Þórdís Kolbrún er varaformaður flokksins auk þess sem hún er sitjandi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Fyrstu tölur voru birtar nú rétt…Lesa meira

true

Flúormengun vestan við Grundartanga

Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð var haldinn miðvikudaginn 9. júní. Þar var ályktað að byggðin vestan við Grundartanga sé undir of miklu álagi flúors. Því til rökstuðning var bent á yfirlit um flúormengun í beinum lamba frá 2010-2019. „Umhverfisvöktun opinberra aðila er afar takmörkuð og ekki gerð á réttum stöðum, þ.e. stöðum sem gefa glögga og…Lesa meira

true

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði hefjast á sunnudaginn, 20. júní. Er þetta þriðja starfsár sumartónleikanna en grunnhugmynd þeirra er að viðhalda staðnum sem menningarstað. „Alls verða níu tónleikar í sumar hvern sunnudag kl. 16 frá 20. júní til 15. ágúst. Allur ágóði rennur til styrktar staðnum sem með tímanum mun vonandi verða aðdráttarafl…Lesa meira

true

Nýr opnunartími í Guðlaugu og gjaldtaka hefst

Akraneskaupstaður greinir frá því á vef sínum í dag að opnunartími Guðlaugar breytist á morgun, laugardag. Jafnframt mun gjaldtaka fyrir aðgang að lauginni hefjast en frítt hefur verið í Guðlaugu frá því að hún var opnuð. Sumaropnun Guðlaugar er þannig að opið er alla virka daga frá kl. 12:00 til kl. 20:00 en um helgar…Lesa meira

true

Góð laxveiði

Góð veiði hefur verið í Norðurá. „Þetta er allt að detta inn. Norðurá er komin í kringum 50 laxa og smálaxinn hefur aðeins verið að láta sjá sig,“ sagði Þorsteinn Stefánsson spurður um veiði í Norðurá í Borgarfirði. Hver laxveiðiáin af annarri er að opna þessa dagana. Laxá í Leirársveit var opnuð í gær, á…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Norðurálsmótið hafið á Akranesi

Mikið líf og fjör var á Akranesi þegar skúðganga með kátum ungum knattspyrnumönnum hélt af stað frá Stillholti og niður á Jaðarsbakka klukkan 11 í morgun. Norðurálsmótið er eitt stærsta pollamót í knattspyrnu hér á landi. Mótið hófst í gær, 17. júní, þar sem 8. flokkur drengja og stúlkna kepptu. Mótið var svo formlega sett…Lesa meira

true

Skagamenn í botnsætinu

Skagamenn léku gegn liði KA frá Akureyri á Akranesvelli á miðvikudagskvöldið og urðu að sætta sig við sitt fimmta tap í átta leikjum í sumar í Pepsi Max deild karla. KA menn byrjuðu leikinn vel og komust strax yfir á elleftu mínútu þegar Dusan Brkovic fylgdi vel á eftir skoti Nökkva Þeys Þórissonar. Skagamenn náðu…Lesa meira

true

Lést eftir slys í Hvalfirði

Konan sem féll í skriðu í Hvalfirði á þriðjudagskvöldið lést á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi í gærmorgun, 17. júní. Hún hét Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir og var fædd árið 1977. Sólveig var búsett á Akranesi og lætur hún eftir sig einn son. Sólveig var viðskiptafræðingur frá Bifröst og mikil útivistarmanneskja, sem vann ötullega að því markmiði…Lesa meira

true

Borgarbyggð sýknuð af kröfum Gunnlaugs fyrrverandi sveitarstjóra

Á miðvikudaginn sýknaði Héraðsdómur Vesturlands Borgarbyggð af kröfum Gunnlaugs A. Júlíussonar, fyrrverandi sveitarstjóra. Gunnlaugur höfðaði mál gegn sveitarfélaginu í apríl á síðasta ári því hann taldi uppsögn sína hafa verið ólögmæta. Gunnlaugur var upphaflega ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar frá maí 2016 og út það kjörtímabil, eða út júní 2018. Eftir sveitarstjórnarkosningar 2018 samdi sveitarstjórn Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar…Lesa meira

true

Valgerður bæjarlistamaður Akraness

Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní var tilkynnt að Valgerður Jónsdóttir tónlistarkona hefði hlotið titilinn Bæjarlistamaður Akraness 2021. Valgerður segir á Facebook síðu sinni af þessu tilefni: „17. júní er alltaf svo skemmtilegur en þessi 2021 stendur algjörlega upp úr hjá mér. Ég fékk titilinn „Bæjarlistamaður Akraness“ á torginu í dag og er að springa úr gleði…Lesa meira