Fréttir

true

Leggja til að veiðiráðgjöf í þorski verði lækkuð um þrettán prósent

Hafrannsóknastofnun hefur kynnt úttekt sína á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Stofnunin ráðleggur 13% lækkun aflamarks í þorski næsta fiskveiðiár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því er lagt til að ráðlagður heildarafli lækki úr 256.593 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 222.737 tonn. Einkum eru tvær meginástæður sagðar fyrir lækkuninni. Í fyrsta lagi…Lesa meira

true

Telur ómögulegt að nýr oddviti hafi fyrrum oddvita í neðri sætum

Á morgun og laugardag fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Níu gefa kost á sér. Tveir sækjast eftir oddvitasæti listans, báðir sitjandi þingmenn kjördæmisins; Haraldur Benediktsson 1. þingmaður og Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra. Töluverð spenna er í aðdraganda prófkjörsins sem fer fram á morgun og laugardag. Úrslit ættu að liggja fyrir aðfaranótt sunnudags eða…Lesa meira

true

Flugdagur verður á Leirá næsta laugardag

Laugardaginn 19. júní verður flugdagur á Leirá í Hvalfjarðarsveit í tilefni af Hvalfjarðardögum sem fara um helgina. Meðal annars verður boðið upp á útsýnisflug í þyrlu frá þyrlufyrirtækinu Helo. Flogið verður frá Leirá og tekinn stór hringur um Hvalfjarðarsveit. Verð er 15.000 kr á mann og rennur hluti andvirðisins til Björgunarfélags Akraness. Flugið verður í…Lesa meira

true

Ný flotbryggja í Borgarneshöfn

Faxaflóahafnir hafa látið útbúa nýja flotbryggju í Borgarneshöfn. Á vef Borgarbyggðar segir að á síðasta ári hafi sveitarfélaginu borist ábending um að bæta þyrfti aðstöðuna við höfnina í Borgarnesi, sem smábátaeigendur og aðrir nýta til afþreyingar. Flotbryggjan sem var áður í höfninni var stór og þung og eftir að hafnarkanturinn eyðilagðist í sjógangi síðastliðinn vetur…Lesa meira

true

Afkoma Norðuráls batnaði á síðasta ári þrátt fyrir áskoranir

Afkoma Norðuráls á Grundartanga batnaði á síðasta ári þrátt fyrir Covid-19 faraldur og lægra álverð. Tap fyrirtækisins árið 2020 nam um 1,2 milljörðum króna, samanborið við 3,9 milljarða króna tap árið á undan. Tekjur Norðuráls námu 570,8 milljónum dala í fyrra en voru 628,3 milljónir dala árið 2019. „Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á heimsmarkaðsverð…Lesa meira

true

Úthlutanir úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ákvað á fundi sínum í liðinni viku að samþykkja tillögu menningar- og markaðsnefndar um úthlutun úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar. Sex umsóknir bárust í sjóðinn. Eftirtaldir fengu úthlutað: Kór Saurbæjarprestakalls til að halda úti tónlistarstarfi – 200.000 kr. Saumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ – 175.000 kr. Ravisa fyrir viðburð í sundlauginni að Hlöðum á Hvalfjarðardögum…Lesa meira

true

Stafrænt pósthólf bundið í lög

„Skilvirkni og gagnsæi eykst og opinber þjónusta batnar með nýsamþykktum lögum Alþingis um stafrænt pósthólf,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Lögin fela í sér að allir með íslenska kennitölu fá slíkt pósthólf sem hið opinbera nýtir til að koma gögnum til fólks. Með lögunum verður meginreglan sú að gögnum sé miðlað til einstaklinga og lögaðila…Lesa meira

true

Hringleikur ferðast um Vesturland

Sirkushópurinn Hringleikur leggur nú land undir fót og sýnir Allra veðra von utandyra um allt land í sumar. Sýningin var sýnd í Tjarnarbíói í vor og hlaut góðar viðtökur áhorfenda á öllum aldri. Allra veðra von hlaut á dögunum Grímuverðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins 2021. Sýningin hér á Vesturlandi verður sýnd á Akranesi, á…Lesa meira

true

Tveir frísbígolfvellir væntanlegir

Starfsmenn áhaldahúss Snæfellsbæjar vinna nú að því að setja upp tvo varanlega frisbígolfvelli í sveitarfélaginu þar sem hægt verður að stunda þessa íþrótt allt árið um kring. Vellirnir verða við tjaldsvæðið í Ólafsvík og í Tröðinni á Hellissandi.Lesa meira

true

Brautskráning á laugardaginn

Laugardaginn 19. júní verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls útskrifast 129 nemendur; 29 úr háskólagátt, 45 úr grunnnámi og 55 úr meistaranámi. Vegna samkomutakamarkana er gert ráð fyrir að haldnar verði tvær athafnir. Nemendur í háskólagátt og grunnnámi útskrifast klukkan 10.30 og meistaranemar klukkan 13.30. Ef samkomutakmarkanir verða rýmkaðar fyrir útskriftardag verða allir nemar…Lesa meira