Fréttir

true

Afkoma Norðuráls batnaði á síðasta ári þrátt fyrir áskoranir

Afkoma Norðuráls á Grundartanga batnaði á síðasta ári þrátt fyrir Covid-19 faraldur og lægra álverð. Tap fyrirtækisins árið 2020 nam um 1,2 milljörðum króna, samanborið við 3,9 milljarða króna tap árið á undan. Tekjur Norðuráls námu 570,8 milljónum dala í fyrra en voru 628,3 milljónir dala árið 2019. „Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á heimsmarkaðsverð…Lesa meira

true

Úthlutanir úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ákvað á fundi sínum í liðinni viku að samþykkja tillögu menningar- og markaðsnefndar um úthlutun úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar. Sex umsóknir bárust í sjóðinn. Eftirtaldir fengu úthlutað: Kór Saurbæjarprestakalls til að halda úti tónlistarstarfi – 200.000 kr. Saumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ – 175.000 kr. Ravisa fyrir viðburð í sundlauginni að Hlöðum á Hvalfjarðardögum…Lesa meira

true

Stafrænt pósthólf bundið í lög

„Skilvirkni og gagnsæi eykst og opinber þjónusta batnar með nýsamþykktum lögum Alþingis um stafrænt pósthólf,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Lögin fela í sér að allir með íslenska kennitölu fá slíkt pósthólf sem hið opinbera nýtir til að koma gögnum til fólks. Með lögunum verður meginreglan sú að gögnum sé miðlað til einstaklinga og lögaðila…Lesa meira

true

Hringleikur ferðast um Vesturland

Sirkushópurinn Hringleikur leggur nú land undir fót og sýnir Allra veðra von utandyra um allt land í sumar. Sýningin var sýnd í Tjarnarbíói í vor og hlaut góðar viðtökur áhorfenda á öllum aldri. Allra veðra von hlaut á dögunum Grímuverðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins 2021. Sýningin hér á Vesturlandi verður sýnd á Akranesi, á…Lesa meira

true

Tveir frísbígolfvellir væntanlegir

Starfsmenn áhaldahúss Snæfellsbæjar vinna nú að því að setja upp tvo varanlega frisbígolfvelli í sveitarfélaginu þar sem hægt verður að stunda þessa íþrótt allt árið um kring. Vellirnir verða við tjaldsvæðið í Ólafsvík og í Tröðinni á Hellissandi.Lesa meira

true

Brautskráning á laugardaginn

Laugardaginn 19. júní verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls útskrifast 129 nemendur; 29 úr háskólagátt, 45 úr grunnnámi og 55 úr meistaranámi. Vegna samkomutakamarkana er gert ráð fyrir að haldnar verði tvær athafnir. Nemendur í háskólagátt og grunnnámi útskrifast klukkan 10.30 og meistaranemar klukkan 13.30. Ef samkomutakmarkanir verða rýmkaðar fyrir útskriftardag verða allir nemar…Lesa meira

true

Sláttur er hafinn á Norður-Reykjum

Hjónin Bjartmar Hannesson og Kolbrún Sveinsdóttir bændur á Norður-Reykjum í Hálsasveit hófu slátt í dag. Spáð er að hangið gæti þurrt næstu tvo daga og heimatúnið sprottið þokkalega og því sagði Bjartmar í samtali við Skessuhorn að ekki hefði verið eftir neinu að bíða með að athuga hvort tækin væru í lagi. Slógu þau hjón…Lesa meira

true

Skýrari umgjörð um eineltismál

Alþingi samþykkti nýverið lög um breytingu á lögum um grunn- og framhaldsskóla sem miða að því að styrkja lagastoð og heimildir fagráðs eineltismála. Fagráð eineltismála starfar nú bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla en vísa má eineltismálum til ráðsins þegar ekki finnst fullnægjandi lausn á þeim innan skóla eða sveitarfélags. Ráðið veitir álit sín á grundvelli…Lesa meira

true

Fornbílasafnið í Brákarey verður lokað í sumar

Stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar sat í liðinni viku fundi með forsvarmönnum Borgarbyggðar, slökkviliðsstjóra og eldvarnafulltrúa vegna félagsaðstöðunnar og safnsins í Brákarey sem gert var að lokað yrði í febrúar síðastliðnum. Skúli G Ingvarsson formaður félagsins hefur nú upplýst í bréfi til félagsmanna að safnið verði lokað í það minnsta í sumar. Stjórnin hafi fengið þau afdráttarlausu…Lesa meira

true

Pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir lagðar niður

Alþingi samþykkti seint á laugardaginn frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um breytingu á barnaverndarlögum. Málið er liður í endurskoðun laga um þjónustu í þágu barna. Um er að ræða fyrri hluta heildarendurskoðunar barnaverndarlaga. Í lögunum felst meðal annars að pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir verða lagðar niður. Í stað barnaverndarnefndar verður starfrækt barnaverndarþjónusta og umdæmisráð…Lesa meira