Fréttir

true

Hringleikur ferðast um Vesturland

Sirkushópurinn Hringleikur leggur nú land undir fót og sýnir Allra veðra von utandyra um allt land í sumar. Sýningin var sýnd í Tjarnarbíói í vor og hlaut góðar viðtökur áhorfenda á öllum aldri. Allra veðra von hlaut á dögunum Grímuverðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins 2021. Sýningin hér á Vesturlandi verður sýnd á Akranesi, á…Lesa meira

true

Tveir frísbígolfvellir væntanlegir

Starfsmenn áhaldahúss Snæfellsbæjar vinna nú að því að setja upp tvo varanlega frisbígolfvelli í sveitarfélaginu þar sem hægt verður að stunda þessa íþrótt allt árið um kring. Vellirnir verða við tjaldsvæðið í Ólafsvík og í Tröðinni á Hellissandi.Lesa meira

true

Brautskráning á laugardaginn

Laugardaginn 19. júní verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls útskrifast 129 nemendur; 29 úr háskólagátt, 45 úr grunnnámi og 55 úr meistaranámi. Vegna samkomutakamarkana er gert ráð fyrir að haldnar verði tvær athafnir. Nemendur í háskólagátt og grunnnámi útskrifast klukkan 10.30 og meistaranemar klukkan 13.30. Ef samkomutakmarkanir verða rýmkaðar fyrir útskriftardag verða allir nemar…Lesa meira

true

Sláttur er hafinn á Norður-Reykjum

Hjónin Bjartmar Hannesson og Kolbrún Sveinsdóttir bændur á Norður-Reykjum í Hálsasveit hófu slátt í dag. Spáð er að hangið gæti þurrt næstu tvo daga og heimatúnið sprottið þokkalega og því sagði Bjartmar í samtali við Skessuhorn að ekki hefði verið eftir neinu að bíða með að athuga hvort tækin væru í lagi. Slógu þau hjón…Lesa meira

true

Skýrari umgjörð um eineltismál

Alþingi samþykkti nýverið lög um breytingu á lögum um grunn- og framhaldsskóla sem miða að því að styrkja lagastoð og heimildir fagráðs eineltismála. Fagráð eineltismála starfar nú bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla en vísa má eineltismálum til ráðsins þegar ekki finnst fullnægjandi lausn á þeim innan skóla eða sveitarfélags. Ráðið veitir álit sín á grundvelli…Lesa meira

true

Fornbílasafnið í Brákarey verður lokað í sumar

Stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar sat í liðinni viku fundi með forsvarmönnum Borgarbyggðar, slökkviliðsstjóra og eldvarnafulltrúa vegna félagsaðstöðunnar og safnsins í Brákarey sem gert var að lokað yrði í febrúar síðastliðnum. Skúli G Ingvarsson formaður félagsins hefur nú upplýst í bréfi til félagsmanna að safnið verði lokað í það minnsta í sumar. Stjórnin hafi fengið þau afdráttarlausu…Lesa meira

true

Pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir lagðar niður

Alþingi samþykkti seint á laugardaginn frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um breytingu á barnaverndarlögum. Málið er liður í endurskoðun laga um þjónustu í þágu barna. Um er að ræða fyrri hluta heildarendurskoðunar barnaverndarlaga. Í lögunum felst meðal annars að pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir verða lagðar niður. Í stað barnaverndarnefndar verður starfrækt barnaverndarþjónusta og umdæmisráð…Lesa meira

true

Ennþá illa merktar gangbrautir víða á Akranesi

Fyrir um þremur vikum birti Skessuhorn frétt um illa merktar gangbrautir á Akranesi. Það hefur lítið breyst á þessum tíma og enn er það þannig að á mörgum stöðum við helstu umferðargötur bæjarins eru gangbrautamerkingar lítt sýnilegar. Þegar rætt var við Jón Brynjólf Ólafsson, verkefnastjóra Akraneskaupstaðar, um miðjan maí sagði hann að yfirleitt væri það…Lesa meira

true

Listi VG í Norðvesturkjördæmi samþykktur

Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarmaður, leiðir lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi en listinn var samþykktur á fundi á Hótel Laugabakka í Miðfirði í gær. Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður er í öðru sæti listans. Sigríður Gísladóttir dýralæknir á Ísafirði er í þriðja sæti og Þóra Margrét Lúthersdóttir bóndi í því fjórða. Flokkurinn á…Lesa meira

true

Eitt stig á heimavelli hjá Kára

Knattspyrnufélagið Kári lék gegn liði Fjarðabyggðar á laugardaginn í Akraneshöllinni í 2. deild karla í knattspyrnu og endaði leikurinn með markalausu jafntefli. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik fyrir utan eitt gott færi Káramanna og í seinni hálfleik var svipað upp á teningnum. Kári var mun betri aðilinn í seinni hálfleik en 15 mínútum fyrir…Lesa meira