Fréttir

true

Kári enn án sigurs

Knattspyrnufélagið Kári tapaði fyrir liði Njarðvíkur 0:2 í leik sem fram fór í Akraneshöllinni á föstudagskvöld. Hafa Káramenn nú leikið fjóra leiki það sem af er móts, gert eitt jafntefli og tapað þrisvar. Káramenn byrjuðu leikinn vel og var það aðeins frábær markvarsla frá markverði Njarðvíkur sem kom í veg fyrir að þeir næðu forystunni…Lesa meira

true

Viðurkenningar á tíu ára afmæli Íslenska sjávarklasans

Í tilefni tíu ára afmælis Íslenska sjávarklasans veitti Sjávarklasinn síðastliðinn föstudag viðurkenningar til einstaklinga sem hafa með einum eða öðrum hætti stuðlað að auknu samstarfi á ýmsum sviðum sem tengjast Íslenska sjávarklasanum. Athöfnin fór fram í Húsi sjávarklasans að Grandagarði 16 og afhenti Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar viðurkenningarnar og forseti…Lesa meira

true

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Í gær voru 27 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Voru sjö nemendur brautskráðir af Félagsfræðabraut, fjórir af Náttúrufræðibraut, einn af Íþróttafræðibraut – náttúrufræðisviði, þrír af Náttúrufræðibraut – búfræðisviði, ellefu af Opinni braut og einn með viðbótarpróf til stúdentsprófs. Marinó Þór Pálmason nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Að venju er utanaðkomandi aðila boðið…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær voru 55 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Athöfninni var einnig streymt, þar sem færri gátu verið viðstaddir en vildu sökum samkomutakmarkana. Fyrir athöfn fluttu nemendur Tónlistarskólans á Akranesi atriði og léku á þverflautu undir stjórn Patrycju Szalkowicz. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Sjöfn Sólveig…Lesa meira

true

Lagfærðu landsveg í þágu almannavarna

Að beiðni lögreglustjórans á Vesturlandi og í þágu almannavarna unnu starfsmenn Vegagerðarinnar í vikunni við lagfæringar á landsvegi sem upphaflega var lagður sem línuvegur frá Fitjum í Skorradal og tengist Uxahryggjavegi. Að sögn Valgeirs Ingólfssonar yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni í Borgarnesi fékkst tveggja milljóna króna aukafjárveiting í verkið. Litið var svo á að bæta þyrfti veginn…Lesa meira

true

Þurrkatíð á enda

Útlit er fyrir langþráða úrkomu á landinu næstu daga. Úrkoman verður hvað mest á Suðvesturlandi. Hættan á gróðureldum ætti því að verða brátt að verða úr sögunni, í bili að minnsta kosti. Veðurstofan spáir suðaustan 8-15 m/s en 15-20 sunnan- og suðvestantil. Skýjað og víða dálítil rigning en bjartviðri á norðanverðu landinu. Auk hættu á…Lesa meira

true

Forsetinn þátttakandi í stofngöngu Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs

Eins og fram kom í Skessuhorni síðastliðinn vetur var Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs stofnað 1. mars. Fjölmenni skráði sig í félagið í upphafi og hefur fjölgað talsvert í hópnum á síðustu misserum. Nú þegar hafa verið farnar nokkrar styttri gönguferðir sem félagið hefur skipulagt en næstkomandi sunnudag verður formleg stofnganga félagsins haldin. Gengið verður um Jafnaskarðsskóg í…Lesa meira

true

Varað er við hvassviðri síðdegis í dag

Eftir hádegi í dag hvessir af suðaustan hér um suðvestanvert landið. Reikna má með að vindur geti farið í 30-35 m/s í hviðum á utanverðu Kjalarnesi og eins við Hafnarfjall frá klukkan 14 og verður vindhraði í hámarki síðdegis. Ekki er búist við að vind lægi fyrr en eftir miðnætti. Við þessar aðstæður er varhugavert…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Faxabraut og Þjóðbraut á Akranesi

Nú standa yfir umfangsmiklar lagnaframkvæmdir við Þjóðbraut og Faxabraut á Akranesi. Við Þjóðbraut eru Veitur í samstarfi við Gagnaveitu Reykjavíkur að leggja veitulagnir (heitt- og kalt vatn, rafmagn og ljósleiðara) samhliða Þjóðbraut og að nýjum byggingum á Dalbrautarreit. Lagnirnar munu einnig þjóna væntanlegri íbúðabyggð sem rísa mun á Sementsverksmiðjureitnum. Áætluð verklok eru í nóvember 2021…Lesa meira

true

Taka yfir lóð og mannvirki á Dalbraut 8

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 20. maí sl. samning Akraneskaupstaðar og Veitna ohf. um yfirtöku bæjarins á lóð og mannvirkjum á Dalbraut 8. Orkuveitan og þar áður Rafveita Akraness voru með starfsstöð í húsinu en það hefur staðið ónotað undanfarin ár vegna myglu. Bæjarráð samþykkti breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun ársins 2021 og viðbótarútgjöld vegna…Lesa meira