Fréttir

true

Dregið í Mjólkurbikarnum

Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins fyrr í vikunni og voru Vesturlandsliðin nokkuð heppin með andstæðinga. Skagamenn fengu heimaleik gegn Fram sem leikur í Lengjudeildinni, Víkingur Ólafsvík fékk útileik og mætir liði KFS frá Vestmannaeyjum sem leikur í þriðju deildinni og Kári mætir KR-ingum í Akraneshöllinni. Leikirnir í 32-liða úrslitunum fara fram dagana 22.-24. júní…Lesa meira

true

Töluverð aukning á strandveiðum í Snæfellsbæ

Mikið líf er þessa dagana í höfnum Snæfellsbæjar þegar strandveiðiflotinn bætist við vertíðarbáta og -skip sem fyrir eru. Við trébryggjuna í Rifi voru t.d. um liðna helgi fimm bátar hver utan á öðrum, sem gerist ekki oft. Um 30 handfærabátar lágu þá í höfninni, bátar sem flotbryggjan ætti að rúma, en það sem fréttaritari tók…Lesa meira

true

Sláttur á sláttufólki

Einbeitingin skein úr augum Hjördísar Brynjarsdóttur þar sem hún sló heldur betur um sig á grasblettinum við skrifstofu Skessuhorns á Akranesi. Sláttufólk Skagans slær ekki slöku við þessa dagana og  er eitt af því fyrsta sem má ekki slá af þegar sumarið nálgast því þá finnur maður loksins ilminn af vori í loftinu með smá…Lesa meira

true

Undir allskonar áhrifum

Um síðustu helgi stöðvuðu lögreglumenn ökumann á Vesturlandsvegi við Höfn í Melasveit. Ökumaður svaraði jákvætt áfengis-, fíkniefna- og lyfjaprófi. Viðkomandi var handtekinn og í kjölfarið gerð leit í ökutæki og í framhaldinu húsleit. Fundust ætluð fíkniefni við leit og fara þau í rannsókn. Þá reyndu ökumaður og farþegi að skipta um sæti en myndavélar lögreglunnar…Lesa meira

true

Áríðandi tilkynning frá Slökkviliði Borgarbyggðar

Hættustig er í gildi í Borgarbyggð vegna hættu á gróðureldum Slökkvilið Borgarbyggðar sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem íbúar, sumarhúsaeigendur og aðrir gestir í Borgarbyggð eru beðnir um að fara gætilega og varast aðstæður og athafnir sem geta leitt af sér að eldur yrði laus í gróðri á meðan á þurrkatíð stendur. Í…Lesa meira

true

Fjölgar um þrjú hjúkrunarrými á Jaðri

Hjúkrunarrýmum á hjúkrunarheimilinu Jaðar í Ólafsvík fjölgaði um þrjú í kjölfar þess að nýr samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars tók gildi þann 1. apríl síðastliðinn. Nýi samningurinn hefur í för með sér að biðlisti eftir plássi mun styttast, reksturinn styrkjast og þjónustan eflast. Í frétt frá Snæfellsbæ um málið segir að…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Bláfáninn blaktir við Langasand

Bláfáninn var dreginn að húni við Langasand á Akranesi í morgun, níunda árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og starndsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er…Lesa meira

true

Framlag Íslands sýnt í kvöld

Síðari undanriðill Eurovision söngvakeppninnar verður sýndur í kvöld kl. 19 í Ríkissjónvarpinu í beinni útsendingu frá Ahoy höllinni í Rotterdam. Þar munu 17 lönd keppa um þau tíu sæti sem eru í boði í úrslitunum á laugardaginn. Framlag Íslands; 10 Years, með Daða og Gagnamagninu verður áttunda atriði kvöldsins, en þá verður spiluð upptaka frá…Lesa meira

true

Molta fyrir íbúa í Borgarbyggð

Á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að molta frá Íslenska gámafélaginu sé nú aðgengileg íbúum í sveitarfélaginu og er hún staðsett fyrir neðan Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi. Moltan sem um ræðir er töluvert gróf og hentar því vel í trjábeð. Ekki verður mögulegt að fá fíngerðari moltu og eins og staðan er á framleiðslu moltunnar…Lesa meira

true

Njóta góða veðursins

Hún Sara Lísa starfar sem dagmóðir á Akranesi. Þrátt fyrir að lofthitinn sé ekki hár fór hún út í góða veðrinu í morgun með börnin og smellti blaðamaður mynd þegar þau óku framhjá ritstjórnarskrifstofunni.Lesa meira