Fréttir

true

Birtu skýrslu um afkomu sauðfjárbænda

„Tækifæri íslenskra sauðfjárbænda til bættrar afkomu liggja í áframhaldandi hagræðingu í búrekstri, hagræðingu í rekstri sláturhúsa og hagkvæmara fyrirkomulagi útflutnings.“ Þetta eru helstu niðurstöður skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana. Skýrslan var unnin að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og var kynnt í morgun…Lesa meira

true

Fögnuðu námslokum í Menntaskóla Borgarfjarðar

Það voru glöð ungmenni sem fóru um götur Borgarnes í gærmorgun og fögnuðu væntanlegri útskrift frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Þau heimsóttu kennara og skólameistara í morgunsárið og þökkuðu fyrir samveruna. Það var þvílík stemning hjá krökkunum en þau hafa helming skólagöngunnar búið við samkomutakmarkanir og því kærkomið fyrir þau að geta glaðst saman. Nemendur komu svo…Lesa meira

true

Leitin að leikurum

Í byrjun júní eiga að hefjast upptökur á kvikmyndinni Woman At Sea í Ólafsvík og nágrenni. Í frétt á vef Snæfellsbæjar segir að upptökur eiga að standa yfir fram í júlí og hafa framleiðendur óskað eftir aukaleikurum af svæðinu. Áhugasamir aukaleikarar á aldrinum 18-70 ára eru hvattir til að mæta á Hótel Ólafsvík í dag,…Lesa meira

true

Beltin talin hafa bjargað mannslífum

Á sunnudagskvöld varð bílvelta á Hraunhreppsvegi við Einholt. Tveir voru í bílnum og ökumaður 17 ára síðan í janúar. Ökumaður segist hafa hrokkið eitthvað við, kippt í stýrið og við það misst bílinn út af veginum sem er malarvegur. Ökumaður og farþegi sem voru nokkuð skornir og lemstraðir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi til…Lesa meira

true

Daði og Gagnamagnið stíga vonandi á svið annað kvöld

Daði og Gagnamagnið stíga vonandi á svið í Rotterdam annað kvöld og flytja lagið 10 Years. Fyrri undanúrslit Eurovision söngvakeppninnar voru haldin í gærkvöldi þar sem tíu lög af 16 komust áfram. Önnur tíu lög verða valin af þeim 17 lögum sem flutt verða annað kvöld á stóra sviðinu. Aðalkeppnin verður á laugardaginn og er…Lesa meira

true

Eldur í sinu milli bæjanna Grafar og Kúludalsár

Upp úr klukkan 21 í kvöld kom upp eldur í sinu neðan við þjóðveginn, milli bæjanna Grafar og Kúludalsár í Hvalfirði. Eldurinn breiddist hratt út enda jörð skraufþurr. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út, fyrst í litlu útkalli, en fljótlega allur tiltækur mannskapur. Slökkvistarf gekk vel og eru slökkviliðsmenn og lögregla nú langt komin…Lesa meira

true

Kaup Brimilshólma á Eðalfiski gengin í gegn

Fyrirtækið Brimilshólmi frá Akranesi hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Eðalfiski ehf. í Borgarnesi og tekið við rekstri félagsins. Eðalfiskur ehf. sérhæfir sig eins og kunnugt er í framleiðslu, sölu og dreifingu á ferskum, frystum, reyktum og gröfnum laxaafurðum þar sem stór hluti afurða fyrirtækisins er seldur á erlendum mörkuðum. Jafnframt eru þessar…Lesa meira

true

Dregið í Mjólkurbikarnum

Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins í dag og voru Vesturlandsliðin nokkuð heppin með andstæðinga. Skagamenn fengu heimaleik gegn Fram sem leikur í Lengjudeildinni, Víkingur Ólafsvík fékk útileik og mætir liði KFS frá Vestmannaeyjum sem leikur í þriðju deildinni og Kári mætir KR-ingum í Akraneshöllinni. Leikirnir í 32-liða úrslitunum fara fram dagana 22.-24. júní næstkomandi.Lesa meira

true

Bayeux og Borgarnes

Það var góð tilfinning að koma í Landnámssetur Íslands síðastliðinn fimmtudag og finna þar aftur fullt hús af menningarþyrstum leikhúsgestum. Ekki síður var tilefnið sjálft gleðilegt, 15 ára afmæli þeirrar menningarstofnunar sem setrið er í höndum þeirra Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur og Kjartans Ragnarssonar. Gestir streymdu að og finna mátti einkennilega töfra í loftinu; hér var…Lesa meira

true

Gámur til bráðabirgða fyrir dósamóttöku

Á bílastæði framan við slökkvistöðina við Sólbakka í Borgarnesi var í gær komið fyrir 40 feta gámi sem ætlaður er til að rúma dósamóttöku til bráðabirgða. Verður opið fyrir móttöku dósa í nokkra klukkutíma á dag. Eins og kunnugt er var dósamóttöku Öldunnar í Brákarey lokað í febrúar vegna þess að brunavörnum er ábótavant í…Lesa meira