
Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í sautjánda sinn á sunnudaginn við hátíðlega athöfn á Patreksfirði. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar veitti verðlaunin. Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni. Greta Clough, stofnandi og listrænn stjórnandi Handbendis, tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð 2,5 milljónir króna.…Lesa meira








