Fréttir

true

Ítrekað veggjakrot á Akranesvita

Á vef Akraneskaupstaðar segir frá því að skemmdarverk hafi verið unnin á Akranesvita í tvígang undanfarið, fyrst í mars og nýlega aftur í maí. Búið er að tilkynna verknaðinn til lögreglu og Vegagerðarinnar en vitar landsins eru eign Vegagerðarinnar. Fólk er beðið að hafa augun opin og tilkynna til Akraneskaupstaðar og lögreglunnar ef það verður…Lesa meira

true

Ósáttur við Landhelgisgæsluna sem hleypur eftir hoppandi landeiganda

Lögreglan á Vesturlandi tók á móti Haraldi Jónssyni skipstjóra á Inga Rúnari AK-35 þegar hann kom úr síðasta gráslepputúrnum í gær. Ástæðan var sögð sú að Haraldur hefði verið að veiðum í friðlandi við Kjalarnes og Landhelgisgæslan hefði eitthvað við það að athuga. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Haraldi þar sem hann var að ganga…Lesa meira

true

Skagakonur fá liðsstyrk – fyrsti heimaleikurinn í kvöld

Knattspyrnulið ÍA, sem leikur í Lengjudeild kvenna, hefur fengið liðsstyrk fyrir baráttuna í sumar. Bandaríski framherjinn McKenna Akimi Davidson er gengin til liðs við félagið en hún lék síðast í Litháen þar sem hún spilaði með FC Gintra. Þá hefur Hulda Margrét Brynjarsdóttir ákveðið að taka fram takkaskóna á ný eftir að hafa verið fjarri…Lesa meira

true

Malbikað á Breiðinni á Akranesi

Í góða veðrinu í dag er verið að malbika vegstubb á Breiðinni á Akranesi en lengi og mikið hefur verið kvartað yfir þeim holótta malarvegi sem þar var. Einnig verða bílastæðin við Akranesvitana malbikuð. Breiðin og vitarnir þar hafa sem kunnugt er verið eitt helsta kennileiti og aðdráttarafl bæjarins. Áhugasamir geta því farið að gera…Lesa meira

true

Pútthópur Borgarbyggðar byrjar snemma útiæfingar sínar

Í gær fór fram þriðja útiæfingin á þessu ári hjá Pútthópi Borgarbyggðar og var hún á Hamri. Hópurinn hefur aldrei hafið æfingar svo snemma árs utan dyra en æfingaaðstaðan í Brákarey er lokuð eins og mörgum er kunnugt. „Það hefur á ýmsu gengið hjá þessum áhugasama hópi í vetur. Lokanir vegna Covid-19 hafa komið niður…Lesa meira

true

Sóttu slasaða konu í Kvígindisfell

Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði var kölluð út rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi vegna konu sem slasast hafði í fjallgöngu í Kvígindisfelli, norðaustur af Hvalvatni. Konan hrasaði í hlíðum fellsins og slasaðist á fæti. Björgunarsveitarfólk og sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands fóru á vettvang með fjórhjól og búnað til þess að hlúa að konunni og flytja…Lesa meira

true

Segist taka við góðu búi lögreglustjóra á Vesturlandi

Gunnar Örn Jónsson er nýr lögreglustjóri á Vesturlandi og tók hann við stöðunni fyrir rétt rúmlega hálfum mánuði. Gunnar er fæddur og uppalinn á Selfossi og hafði búið þar alla tíð, að undanskildum námsárunum sem hann var í Reykjavík og síðustu fjórum árum á Sauðárkróki. Gunnar er lögfræðingur að mennt og eftir nám tók hann…Lesa meira

true

Ný grunnsýning opnuð á Byggðasafninu í Görðum

Starfsfólk Akraneskaupstaðar hefur síðastliðin fjögur ár unnið að gerð nýrrar grunnsýningar á Byggðasafninu í Görðum. Hefur það verið eitt helsta verkefni safnsins síðastliðin fjögur ár og er því verki nú lokið. Sýningin verður formlega opnuð á morgun, uppstigningardag, en frítt verður inn á safnið um næstu helgi og eru íbúar hvattir til að nýta sér…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn knúðu fram oddaleik

Skallagrímsmenn unnu sannfærandi sigur á Álftanesi þegar liðin mættust í annarri viðureign 8-liða úrslita 1. deildar karla í körfuknattleik í Borgarnesi í gærkvöldi. Álftnesingar unnu fyrstu viðureign liðanna þegar þau mættust á föstudag og leiddu því einvígið 1-0. Þurftu Skallagrímsmenn að sigra til að halda sér á lífi í úrslitakeppninni sem þeir svo gerðu í…Lesa meira

true

Maíúthlutun Mæðrastyrksnefndar verður í næstu viku

Maíúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 18. maí frá kl. 12:30-16:30 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25 a á Akranesi. Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn gögnum. Tekið er á móti umsóknum í síma 859-3000 og 859-3200 í dag, miðvikudaginn 12. maí, og á morgun fimmtudaginn 13. maí á milli kl. 11-13. Einnig…Lesa meira