Fréttir

true

Samningur ríkisins og Silicor hóflegur að mati ESA

Eftirlitsstofnun EFTA hefur samþykkt ívilnanasamning íslenska ríkisins við Silicor Materials vegna byggingar sólarkísilverksmiðju fyrirtækisins á Grundartanga. Samningurinn kveður á um skattahagræði, það er að segja afslátt á sköttum og opinberum gjöldum, og ívilnanir á reglum um leigu og fyrningu. Þetta kemur fram á heimasíðu ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Samningurinn gildir til tíu ára og andvirði hans…Lesa meira

true

Ræða stækkun Grunnskólans í Borgarnesi

Á fundi Byggðarráðs Borgarbyggðar 4. ágúst síðastliðinn var lögð fram fundargerð byggingarnefndar Grunnskólans í Borgarnesi frá 25. júlí. Þar var rætt um viðbyggingu við Grunnskólann í Borgarnesi. Pálmi Þór Sævarsson fór yfir niðurstöður kostnaðarmats sem unnið var af verkfræðistofunni Verkís og arkitektum. Voru þrjár tillögur kostnaðarmetnar. Í tveimur þeirra er nýbyggingarkostnaður á bilinu 450-470 milljónir…Lesa meira

true

Listahátíð í Borgarnesi um helgina

Listahátíðin Plan-B artfestival verður haldin í Borgarnesi fyrsta sinni helgina 12-14. ágúst næstkomandi. Hátíðin er fjölþjóðleg, en um 20 listamenn af sjö mismunandi þjóðernum munu taka þátt í henni. Listamennirnir stunda fjölbreytta list og verða til sýnis verk úr öllum miðlum nútíma myndlistar. Verkin spanna allt frá olíumálverkum og innsetningum til vídeóverka. Hilmar Guðjónsson einn…Lesa meira

true

Fjórði kylfingurinn fór holu í höggi

Ekkert lát virðist ætla að verða á því að kylfingar fari holu í höggi á Garðavelli á Akranesi í sumar. Skessuhorn greindi frá því 20. júlí síðastliðinn að þrír kylfingar hefðu farið holu í höggi í mánuðinum. Föstudaginn 29. júlí síðastliðinn bættist Ingveldur Bragadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar síðan í hóp hinna lánssömu þegar hún fór…Lesa meira

true

Sigríður Júlía ráðin sviðsstjóri hjá Skógræktinni

Fyrr í vikunni var ráðið í þrjár stjórnunarstöður hjá Skógræktinni, nýrri og sameinaðri stofnun ríkisins. Aðalsteinn Sigurgeirsson var ráðinn sem fagmálastjóri, Hreinn Óskarsson sem sviðsstjóri samhæfingarsviðs og loks Sigríður Júlía Brynleifsdóttir sem sviðsstjóri skógarauðlindasviðs.  Sigríður Júlía hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Vesturlandsskóga. Hún lauk meistaraprófi skógfræði frá Ási í Noregi og hóf fyrst störf…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri reiðskemmu

Eins og Skessuhorn greindi frá í júnímánuði hefur verið ákveðið að reisa reiðskemmu á svæði hesteigendafélagsins Hrings í Ólafsvík. Fyrsta skóflustungan að skemmunni var tekin þriðjudaginn 2. ágúst síðastliðinn af þeim Kristmanni Arnkelssyni og Trausta Magnússyni, heiðurs- og stofnfélögum hesteigendafélagsins. Framkvæmdir hófust sama dag. Að sögn Stefáns Smára Kristóferssonar, formanns hesteigendafélagsins Hrings, er stefnt að…Lesa meira

true

Slökkvistarfi lokið á Breiðinni

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar hefur nú náð að komast fyrir síðustu glæðirnar í húsnæði Vélsmiðjunnar Jötunstáls á Hafnarbraut 16 á Akranesi. Eldur kom upp í vélsmiðjunni í morgun og urðu starfsmenn fyrstir varir við eldinn þegar þeir mættu til vinnu klukkan 8. Að sögn Þráins Ólafssonar slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf vel miðað við aðstæður. Milliloft var þó…Lesa meira

true

Vélsmiðjan Jötunstál á Akranesi eldi að bráð

Þegar starfsmenn vélsmiðjunnar Jötunstáls á Breiðinni á Akranesi mættu til vinnu í morgun fyrir klukkan 8 mætti þeim mikill reykur í húsakynnum fyrirtækisins. Allur tiltækur mannskapur frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallaður út sem og lögregla. Mikill eldur var í húsinu og þá var vitað um kúta innandyra sem sprengihætta var af. Nokkrir þeirra sprungu meðan…Lesa meira

true

UMFÍ vill stofna lýðháskóla á Laugarvatni

Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur áhuga á að stofna og reka lýðháskóla á Laugarvatni. Horft er til húsnæðis íþróttakennaraháskólans á staðnum, en Háskólaráð Háskóla Íslands ákvað í febrúar á þessu ári að flytja námið frá Laugarvatni til Reykjavíkur. Gangi það eftir fækkar opinberum störfum í Bláskógabyggð. Með stofnun lýðháskóla UMFÍ á Laugarvatni væri gerð tilraun til…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi í dag

Bíll Blóðbanka Íslands verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 9. ágúst frá kl. 10:00 til 17:00. Allir sem mega og geta gefið blóð eru hvattir til að mæta.Lesa meira