Fréttir

true

Pútthópur Borgarbyggðar byrjar snemma útiæfingar sínar

Í gær fór fram þriðja útiæfingin á þessu ári hjá Pútthópi Borgarbyggðar og var hún á Hamri. Hópurinn hefur aldrei hafið æfingar svo snemma árs utan dyra en æfingaaðstaðan í Brákarey er lokuð eins og mörgum er kunnugt. „Það hefur á ýmsu gengið hjá þessum áhugasama hópi í vetur. Lokanir vegna Covid-19 hafa komið niður…Lesa meira

true

Sóttu slasaða konu í Kvígindisfell

Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði var kölluð út rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi vegna konu sem slasast hafði í fjallgöngu í Kvígindisfelli, norðaustur af Hvalvatni. Konan hrasaði í hlíðum fellsins og slasaðist á fæti. Björgunarsveitarfólk og sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands fóru á vettvang með fjórhjól og búnað til þess að hlúa að konunni og flytja…Lesa meira

true

Segist taka við góðu búi lögreglustjóra á Vesturlandi

Gunnar Örn Jónsson er nýr lögreglustjóri á Vesturlandi og tók hann við stöðunni fyrir rétt rúmlega hálfum mánuði. Gunnar er fæddur og uppalinn á Selfossi og hafði búið þar alla tíð, að undanskildum námsárunum sem hann var í Reykjavík og síðustu fjórum árum á Sauðárkróki. Gunnar er lögfræðingur að mennt og eftir nám tók hann…Lesa meira

true

Ný grunnsýning opnuð á Byggðasafninu í Görðum

Starfsfólk Akraneskaupstaðar hefur síðastliðin fjögur ár unnið að gerð nýrrar grunnsýningar á Byggðasafninu í Görðum. Hefur það verið eitt helsta verkefni safnsins síðastliðin fjögur ár og er því verki nú lokið. Sýningin verður formlega opnuð á morgun, uppstigningardag, en frítt verður inn á safnið um næstu helgi og eru íbúar hvattir til að nýta sér…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn knúðu fram oddaleik

Skallagrímsmenn unnu sannfærandi sigur á Álftanesi þegar liðin mættust í annarri viðureign 8-liða úrslita 1. deildar karla í körfuknattleik í Borgarnesi í gærkvöldi. Álftnesingar unnu fyrstu viðureign liðanna þegar þau mættust á föstudag og leiddu því einvígið 1-0. Þurftu Skallagrímsmenn að sigra til að halda sér á lífi í úrslitakeppninni sem þeir svo gerðu í…Lesa meira

true

Maíúthlutun Mæðrastyrksnefndar verður í næstu viku

Maíúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram þriðjudaginn 18. maí frá kl. 12:30-16:30 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25 a á Akranesi. Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn gögnum. Tekið er á móti umsóknum í síma 859-3000 og 859-3200 í dag, miðvikudaginn 12. maí, og á morgun fimmtudaginn 13. maí á milli kl. 11-13. Einnig…Lesa meira

true

Tók þátt í undankeppni fyrir heimsleikana í Crossfit

Ingvar Svavarsson á Akranesi keppti um helgina í undankeppni fyrir heimsleikana í Crossfit sem verða haldnir í Bandaríkjunum í ágúst á þessu ári. Ingvar keppti í 35-39 ára aldursflokki en alls tóku þrír þátt í þessum flokki hér á landi. Til þess að komast í þessa undankeppni þarf að vera með bestan árangur sem 10%…Lesa meira

true

Elkem býður á leiki kvennaliðs ÍA

Elkem og Knattspyrnufélag ÍA hafa gert þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér styrk við kvennaknattspyrnuna á Akranesi. Í samningum felst að Elkem býður öllum á leiki ÍA á Akranesvelli í sumar í Lengjudeild kvenna og eru bæjarbúar hvattir til að taka boðinu og fjölmenna á leikina í sumar. Fyrsti heimaleikur ÍA er einmitt í…Lesa meira

true

Hættustigi almannavarna lýst yfir vegna þurrka

Í hádeginu í dag ákvað Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi að lýsa yfir hættustigi almannavarna. „Svæðið sem um er að ræða nær frá Breiðafirði að Eyjafjöllum. Þessi ákvörðun er byggð á því að undanfarið hefur lítið rignt þessu svæði og veðurspá næstu daga sýnir ekki neina…Lesa meira

true

Snæfell dregur sig úr keppni í 4. deild

Knattspyrnulið Snæfells, sem ætlaði að taka þátt í A-riðli 4. deildar karla, hefur skráð sig úr keppni á Íslandsmótinu. Erfiðlega hefur gengið að manna liðið í Stykkishólmi og er helsta ástæðan sú að annað lið af Snæfellsnesi, Reynir Hellissandi, tekur þátt í fyrsta skipti í sumar í fjórðu deildinni og hafa margir leikmenn Snæfells gengið…Lesa meira